Tillaga að sameiningu Kolbrún Björt Sigfúsdóttir skrifar 4. maí 2011 00:00 Oft hef ég heyrt því fleygt að unga fólkið beri enga virðingu fyrir gamla fólkinu í landinu. Ef svo væri, og ég er ekki að segja að svo sé, væri þá ekki upplagt að gera því kleift að kynnast gömlu fólki betur? Nú er mikið talað um sameiningu leikskóla og sameiningu leikskóla við grunnskóla. Ég er með betri hugmynd. Af hverju sameinum við ekki leikskóla og elliheimilin? Þannig myndum við tryggja samskipti yngri og eldri kynslóða, lífga upp á dag ellilífeyrisþeganna og auðga menningarlegan arf barnanna okkar. Hóparnir gætu hjálpað hvor öðrum, þau eldri lesið fyrir þau yngri, þau yngri sungið fyrir þau eldri og svo framvegis. Pælum aðeins í þörfum hópanna tveggja: Báðir vakna mjög snemma. Báðir borða svipaða fæðu (allavega á stofnunum). Báðir þurfa hvíld yfir daginn. Báðir eru skikkaðir í föndur og leiki yfir daginn, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Geta elstu leikskólabörnin ekki spilað bingó? Hafa gamlingjarnir ekki gaman af sögustund? Nú er enginn að segja að sama prógramm þyrfti að vera allan daginn fyrir báða hópa, líkt og tveggja ára börn eru ekki í sama prógrammi og fimm ára börn á leikskólum í dag. En þó nokkuð mætti gera í sameiningu, báðum hópum til gleði. Ég er þess fullviss að meiri ánægja yrði með þetta fyrirkomulag en með því að hafa tveggja ára börn og tólf ára börn á sama leikvellinum. Sameining elliheimila og leikskóla er í það minnsta ekki heimskulegri en hvað annað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Oft hef ég heyrt því fleygt að unga fólkið beri enga virðingu fyrir gamla fólkinu í landinu. Ef svo væri, og ég er ekki að segja að svo sé, væri þá ekki upplagt að gera því kleift að kynnast gömlu fólki betur? Nú er mikið talað um sameiningu leikskóla og sameiningu leikskóla við grunnskóla. Ég er með betri hugmynd. Af hverju sameinum við ekki leikskóla og elliheimilin? Þannig myndum við tryggja samskipti yngri og eldri kynslóða, lífga upp á dag ellilífeyrisþeganna og auðga menningarlegan arf barnanna okkar. Hóparnir gætu hjálpað hvor öðrum, þau eldri lesið fyrir þau yngri, þau yngri sungið fyrir þau eldri og svo framvegis. Pælum aðeins í þörfum hópanna tveggja: Báðir vakna mjög snemma. Báðir borða svipaða fæðu (allavega á stofnunum). Báðir þurfa hvíld yfir daginn. Báðir eru skikkaðir í föndur og leiki yfir daginn, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Geta elstu leikskólabörnin ekki spilað bingó? Hafa gamlingjarnir ekki gaman af sögustund? Nú er enginn að segja að sama prógramm þyrfti að vera allan daginn fyrir báða hópa, líkt og tveggja ára börn eru ekki í sama prógrammi og fimm ára börn á leikskólum í dag. En þó nokkuð mætti gera í sameiningu, báðum hópum til gleði. Ég er þess fullviss að meiri ánægja yrði með þetta fyrirkomulag en með því að hafa tveggja ára börn og tólf ára börn á sama leikvellinum. Sameining elliheimila og leikskóla er í það minnsta ekki heimskulegri en hvað annað.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun