Ríkið hefur varið störf kvenna Hildur Jónsdóttir skrifar 14. apríl 2011 06:00 Í febrúar voru 13.772 manns á atvinnuleysisskrá. Það er hryggileg staðreynd og íslenskt samfélag þolir það ekki til lengdar. Atvinnuleysið er 9,3% meðal karla, 7,8% meðal kvenna. Frá hruni hafa fleiri störf tapast en sem þessu nemur, allt að 20.000. Muninn má að mestu skýra með erlendu vinnuafli sem fór af landi brott, en einnig sókn eftir aukinni menntun. Nú hafa heyrst yfirlýsingar sem helst má skilja sem svo að ríkið hafi unnvörpum skorið niður kvennastörf. Ekkert er fjær sanni. Tölur yfir atvinnuleysi leiða hið sanna í ljós. Atvinnuleysið birtist á einkamarkaðinumFrá febrúar 2008 til febrúar 2010 misstu 13.640 manns atvinnuna, 8.416 karlar og 5.204 konur samkvæmt Vinnumálastofnun. 97% karlanna og 84% kvennanna komu úr einkageiranum. Aðeins 7,9% þessa mikla fjölda misstu starf hjá ríki eða sveitarfélögum. Um tveir af hverjum þremur ríkisstarfsmönnum eru konur og er hlutfallið enn hærra hjá sveitarfélögunum. Því er ólíku saman að jafna þegar horft er til einkageirans eða hins opinbera. Í einkageiranum hafa verið hoggin djúp skörð í heilar atvinnugreinar meðan tekist hefur að verja störf hjá hinu opinbera að mestu. Það hefur verið stefna stjórnvalda að reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir uppsagnir þrátt fyrir að niðurskurður hafi verið óhjákvæmilegur. 2009 og 2010 fækkaði stöðugildum hjá ríkinu um 545. Þar af eru stöðugildi kvenna 475. Hvert tapað starf er einu starfi of mikið. Á Landspítalanum einum hefur stöðugildum fækkað um 350 á tveimur árum. Langt í frá allir sem úr þessum stöðugildum hafa horfið lentu á atvinnuleysisskrá. Þannig láta árlega nokkrir af störfum sökum aldurs, veikinda og annars, en höfum í huga hinn gríðarlega fjölda starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar. Við bætist að sums staðar hefur þjónustuþáttum verið útvistað með því skilyrði að hluti þeirra sem þeim sinntu áður yrði endurráðinn hjá nýjum atvinnurekanda. Á Landspítalanum nemur fækkun stöðugilda af þeirri ástæðu um 100 af 350 í allt. Ríkisstjórnin hefur forgangsraðað störfum konum í vil. Minnast má að við fjárlagagerð fyrir árið 2011 stóðu uppsagnir um 634 kvenna á heilbrigðisstofnunum víða um land fyrir dyrum. Fallið var frá ríflega 80% þeirra. Á móti hafa opinberar framkvæmdir verið skornar niður eða þeim frestað. Þar hafa karlastörf tapast. Því má allt eins halda fram að stjórnvöld hafi kosið að verja störf kvenna hjá hinu opinbera á kostnað starfa karla á einkamarkaði, en á þeim bitnar niðurskurður framkvæmda helst. Markmiðið er ekki eitt og sér að verja kvennastörf, heldur ekki síður að verja þau lífsgæði sem felast í almannaþjónustu. Aukin eftirspurn kemur öllum til góðaÍ tölum yfir atvinnulausa eftir atvinnugreinum frá febrúar 2008 til febrúar 2010 kemur fram að yfir fimmtungur allra atvinnulausra kvenna starfaði áður við verslun og viðgerðir, ríflega tíundi hluti við sérhæfða þjónustu á einkamarkaði, tæplega tíundi hluti við gisti- og veitingahúsastarfsemi og álíka í iðnaði. Mannvirkjagerð er langstærsta einstaka atvinnugreinin sem orðið hefur atvinnuleysinu að bráð, en um 20% karla sem misstu vinnuna á þessu tímabili störfuðu þar. Sú atvinnugrein sem kemur næst þegar horft er til karlanna er verslun og viðgerðir, þá iðnaður og hráefnavinnsla og loks leigustarfsemi og sérhæfð þjónusta. Ljóst er að ef hamla á gegn atvinnuleysi nægir ekki að verja störf ríkisstarfsmanna. Örva verður eftirspurn í hagkerfinu og koma framkvæmdum af stað – þannig skapast atvinna fyrir bæði karla og konur. Á dögunum kynnti forsætisráðherra að um 2.200 störf væru framundan þegar horft væri til fjárfestinga á undirbúningsstigi hjá ríki og einkaaðilum, flest tímabundin meðan framkvæmdir vara, um fjórðungur framtíðarstörf. Í tengslum við yfirstandandi kjarasamningagerð hefur ríkisstjórnin lýst yfir að enn verði bætt í. Í nafni kynjaðrar fjárlagagerðar hafa ýmsir þóst geta fullyrt að þessar aðgerðir myndu aðeins gagnast körlum. Þetta er grunnhyggnisleg afstaða og með henni er horft framhjá samspili ólíkra atvinnugreina. Mannvirkjagerð dregist samanRíkið hefur í grófum dráttum þrjár leiðir til að hamla gegn atvinnuleysi á einkamarkaði. Sú sem mestu skiptir felst í að tryggja góða efnahagsstjórn og hagstæða umgjörð atvinnurekstrar og fjárfestinga einkaaðila. Önnur lýtur að örvun nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi, m.a. með styrkjum og rannsóknum. Sú þriðja felst í að efna til beinna verkefna, oftast með útboðum á verklegum framkvæmdum. Frá síðustu aldamótum hafa framkvæmdir á vegum hins opinbera numið að meðaltali 17% af allri mannvirkjagerð. Þar er átt við vegaframkvæmdir, nýbyggingar, gangnagerð, brúarsmíði og viðhald þessara mannvirkja. Frá hruni hefur hlutdeild ríkisins í mannvirkjagerð haldist óbreytt, sem þýðir að opinberar framkvæmdir hafa dregist jafnmikið saman og í samfélaginu öllu eða um tvo þriðju miðað við árin 2005-2008 en um helming miðað við næstu ár á undan. Vegna fjárskorts hefur ríkið ekki með öflugum hætti beitt því tæki sem opinberar framkvæmdir geta verið til sveiflujöfnunar. Í fyrirtækjum á þessu sviði starfa konur líka. Margfeldisáhrif á önnur störf geta verið allt að sexföld. Verkfræðingurinn, matráðurinn, launafulltrúinn, smiðurinn, bókarinn og gröfumaðurinn sem með þessu fengju aukin verkefni myndu væntanlega öll nota lungann af launatékkanum í verslunum, til kaupa á þjónustu og til að greiða af lánum. Innspýting af fjármagni inn á vinnumarkaðinn í heild eykur eftirspurn innan þeirra atvinnugreina þar sem atvinnuleysið er mest og þar starfa bæði karlar og konur. Nokkur orð um kynjaða hagstjórnÞað er eitthvað fráhrindandi við það þegar einstaklingar með takmarkaðan áhuga á kynjaðri hagstjórn og enn minni þekkingu nota hugtakið sem slagvopn í atlögum sem hafa allt annan tilgang en að vinna þeirri aðferðafræði fylgis. Kynjuð hagstjórn snýst ekki um að líta eingöngu til hagsmuna kvenna. Hún snýst um að skilja hvernig ákvarðanir stjórnvalda hafa áhrif á bæði karla og konur og ekki síst samspil þar á milli þannig að fjármagni sé ráðstafað með hagsmuni beggja kynja í huga. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Skoðun Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon Skoðun