Vona að Íslendingar fjölmenni 18. apríl 2011 13:00 Your Rainbow Panorama heitir verk Ólafs Elíassonar á þaki listasafns Árósa.
Úrslitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu hjá U21 landsliðliðum karla fer fram í Danmörku dagana 11.-25. júní. Ísland spilar í Árósum og Álaborg og þar ríkir mikil eftirvænting. „Þetta er stærsti íþróttaviðburður og um leið stærsti knattspyrnuviðburður sem hefur átt sér stað í Danmörku," segir Michael Jaap, kynningarfulltrúi menningar- og frístundamála hjá Árósarborg. Höfuðstöðvar mótsins verða í Árósum og þar eru menn sérstaklega spenntir. „Við leggjum ríka áherslu á að umgjörðin verði sem allra glæsilegust. Við ætlum að slá upp heljarinnar fótboltaveislu og leggjum allan bæinn undir," segir Michael. Íslenska U21 árs landsliðið hefur aldrei náð í úrslitakeppni EM og er eftirvæntingin því ekki minni hér heima. „Þetta er eitt sterkasta landslið sem Ísland hefur átt og ég vona að það skili okkur alla leið. Draumurinn er að ná Ólympíusæti," segir Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðs Íslands. Hann var um tíma atvinnumaður í fótbolta hjá AGF í Árósum og er sannfærður um að móttökurnar verði góðar. „Það er ljóst að fjölmargir Íslendingar hafa hug á að fylgja íslenska liðinu til Danmerkur. Ég finn fyrir miklum áhuga og á von á því að fjölskyldur leikmanna mæti á staðinn. Áhuginn nær þó út fyrir það og má gera ráð fyrir því að Íslendingar heima og á hinum Norðurlöndunum komi til að fylgjast með," segir Tómas Ingi sem er ánægður með að mótið skuli haldið á Jótlandi. „Ég get hiklaust mælt með Árósum. Þetta er minnsta stórborg í heimi."Tómas Ingi Tómasson.Flugleiðir bjóða upp á beint flug til Billund í sumar sem þykir góður valkostur fyrir þá sem ætla á mótið og samkvæmt forsvarsmönnum flugfélagsins er áhuginn mikill. Ísland er í A-riðli með Danmörku, Sviss og Hvíta-Rússlandi. Keppt er í tveimur riðlum og tvö efstu liðin í hvorum riðli komast áfram í undanúrslit. Þrjú efstu liðin fá síðan þátttökurétt á Ólympíuleikunum í London árið 2012. Englendingar fá sem gestgjafar sjálfkrafa þátttökurétt og ef þeir verða í efstu þremur sætunum er ljóst að fjögur lið af átta komast áfram. „Möguleikarnir eru því nokkuð góðir," segir Tómas Ingi.Verkið verður vígt 28. maí en sama dag hefjast íslenskir þemadagar í Árósum. Fyrsti leikur Íslands fer fram í Árósum 11. júní.Ferðamálayfirvöld í Árósum leggja nú allt kapp á að gera bæinn kláran fyrir mótið og utan landsleikjanna verður mikið um viðburði í bænum fyrir börn og fullorðna. Ferðamálayfirvöld gera sér sérstaklega vonir um að nágrannarnir á Íslandi fjölmenni og verða íslenskir þemadagar í bænum frá 28. maí og fram að fyrsta leik Íslands þann 11. júní. Upphaf þeirra miðast við opnun á listaverki Ólafs Elíassonar á þaki Listasafns Árósa (ARoS Aarhus Kunstmuseum) en það myndar hringlaga manngengan regnboga með útsýni yfir alla borgina. vera@frettabladid.is
Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira