Ég hef verið gagnrýnd Vilborg Oddsdóttir skrifar 13. maí 2011 06:00 Fyrir 20 árum var örkreppa á Íslandi og Hjálparstarf kirkjunnar fór að deila út matarpokum. Strax var tekin sú skynsamlega ákvörðun að setjast niður með hverjum og einum, fara í gegnum hans mál og skrá helstu staðreyndir. Var þar lagður grunnur að mikilvægu talsmannshlutverki Hjálparstarfs kirkjunnar sem æ síðan hefur byggst á staðreyndum, áreiðanlegum upplýsingum um fátækt en ekki tilfinningu. Stjórnvöld farin að hlusta – aðgerða óskaðFyrir um 8 árum var félagsráðgjafi ráðinn til Hjálparstarfsins. Á þeim tíma deildu tvö hjálparsamtök út matarpokum, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur á höfuðborgarsvæðinu og Hjálparstarfið sem sinnti öllu landinu. Stjórnmálamenn skutu á samtökin og muna allir orð Davíðs Oddssonar um að Íslendingar hefðu alltaf verið tilbúnir að elta það sem er ókeypis. Þau orð endurspegla áralanga afstöðu stjórnvalda að vilja ekki ræða vandann. Nú hefur bágstöddum fjölgað til muna. Ekki er hægt að skella skollaeyrum við. Hjálparsamtökin eru orðin þrenn. Enn bólar ekki á lausnum frá stjórnvöldum þótt vissulega séu þau farin að hlusta. Ráðgjöf, fjölbreytt og einstaklingsbundin aðstoðÉg hef verið gagnrýnd fyrir að segja að margir þurfi aðra aðstoð en að fá matarpoka – þótt enginn lifi án matar. Þess vegna leggur Hjálparstarf kirkjunnar, eitt góðgerðarfélaga ef þessu tagi, mikla áherslu á faglega ráðgjöf og fleiri úrræði en mat. Þau fela í sér hjálp vegna skólagöngu og tómstunda barna og ungmenna, styrki fyrir lyfjum og lækniskostnaði, fatnað og fleira. Um þetta má lesa í ársskýrslu á www.help.is, undir liðnum Um starfið. Aðstoð okkar er sveigjanleg og sniðin að þörfum hvers og eins. Inneignarkort í stað matarpoka – nauðsynlegt samstarfNú 1. maí hófst ný tegund mataraðstoðar, inneignarkort í stað matarpoka. Um leið var ákveðið að Hjálparstarf kirkjunnar myndi aðeins aðstoða barnafólk með mat en vísa öðrum til hinna hjálparsamtakanna, þar sem þau starfa. Séu engin slík, veitum við öllum aðstoð. Þetta er gert vegna þess að inneignarkortin eru dýrari leið og vegna þess að rannsóknir sýna að barnafjölskyldur hafa það verst í kreppu. Um leið ýtum við við áragamalli ósk okkar til hinna samtakanna um að við vinnum saman, skiptum með okkur umsækjendahópnum. Þannig komum við í veg fyrir að sumir fari á marga staði eftir aðstoð. Þannig getum við sniðið aðstoðina hver að sínum hópi. Allir sem sækja um aðstoð hjá okkur þurfa að koma með gögn um tekjur og útgjöld. Það sem er afgangs ræður því hvort viðkomandi fái aðstoð. Þannig fá aðeins þeir verst settu hjálp. Við veitum neyðaraðstoð en ekki viðbót við framfærslu. Fjármálaráðgjöf hefur bæst við hjá okkur. Strax bókaðist í hana. Skjólstæðingum okkar gefst nú líka nýr kostur – einstaklings- og fjölskylduráðgjöf. Tilboðin byggja á þúsundum viðtala sem ég hef tekið um þörfina. Tekið skal fram að öll önnur aðstoð okkar en mataraðstoð er ætluð öllum, bæði barnafólk og öðrum, hvar sem er á landinu. Hvað veist þú í alvöru um fátækt á Íslandi? Fylgstu með sjónvarpsþættinumHjálparstarfið hefur gerst aðili að Evrópusamtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Við væntum samstarfs og frjórra hugmyndaskipta um þennan alheimsvanda. Hér á landi hefur vantað góða og upplýsta umræðu meðal almennings og ráðamanna. Fimmtudagskvöldið 26. maí verður, í opinni dagskrá, þáttur á Stöð 2 með viðtölum við þá sem búa við fátækt á Íslandi og fræðimenn um vandann. Ég skora á þig að fylgjast með. Við verðum að vita hvernig ástandið er. Svo verðum við að bregðast við – þú og ég, íslenskir samborgarar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun