Samfélagslegt hlutverk Íbúðalánasjóðs Hallur Magnússon skrifar 27. janúar 2011 06:00 Íbúðalánasjóður hefur mikilvægu samfélagslegu hlutverki að gegna. Tilvist hans byggist á þessu samfélagslega hlutverki. Lögbundið hlutverk Íbúðalánasjóðs er: „… að stuðla að því með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að fjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleika fólks til að eignast eða leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum.“ 1.gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998. Íbúðalánasjóður er ekki og á ekki að vera venjulegt fjármálafyrirtæki. Íbúðalánasjóður á að vera sjálfbær – en ekki rekinn í hagnaðarskyni. Ef hugmyndafræði viðskiptabanka verður ofan á í rekstri og stjórnun Íbúðalánasjóðs – ef hugmyndafræði hagnaðar tekur við af hugmyndafræði sjálfbærni – ef hugmyndafræði fjármagnsins tekur við af hugmyndfræði samfélagslegrar ábyrgðar – þá er tilvistargrunnur Íbúðalánasjóðs fyrir bí. Þá er rétt að leggja Íbúðalánasjóð niður og færa íbúðalánin alfarið til banka og annarra fjármálafyrirtækja. En auðvitað eigum við að standa vörð um Íbúðalánasjóð sem sjálfbæran, samfélagslegan lánasjóð sem tryggir landsmönnum öllum, hvar sem þeir búa, „öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum“. Þrátt fyrir að í landinu ríki hrein vinstri stjórn sem ætti að öllu jöfnu að berjast fyrir tilvist samfélagslegs Íbúðalánasjóðs, þá virðast blikur á lofti. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru vísbendingar um að samfélagslegt hlutverk Íbúðalánasjóðs verði í öðru sæti, en hugmyndafræði viðskiptabanka, hagnaðar og fjármagns verði sett í fyrsta sæti. Það er hlutverk stjórnvalda, nýrrar stjórnar Íbúðalánasjóðs og framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs að tryggja áfram samfélagslega stöðu sjóðsins. Það er hlutverk stjórnvalda, nýrrar stjórnar Íbúðalánasjóðs og framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs að tryggja landsmönnum öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum. Það er hlutverk okkar, þjóðarinnar, að veita stjórnvöldum, stjórn Íbúðalánasjóðs og framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs stuðning og aðhald svo samfélagslegu hlutverki Íbúðalánasjóðs verði ekki fórnað. Það er að hefjast enn eitt stríðið um samfélagslegt hlutverk Íbúðalánasjóðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason Skoðun Skoðun Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin skrifar Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Húsnæði er ekki lúxus – rödd ungu kynslóðarinnar Aleksandra Jania skrifar Skoðun Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar Sjá meira
Íbúðalánasjóður hefur mikilvægu samfélagslegu hlutverki að gegna. Tilvist hans byggist á þessu samfélagslega hlutverki. Lögbundið hlutverk Íbúðalánasjóðs er: „… að stuðla að því með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að fjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleika fólks til að eignast eða leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum.“ 1.gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998. Íbúðalánasjóður er ekki og á ekki að vera venjulegt fjármálafyrirtæki. Íbúðalánasjóður á að vera sjálfbær – en ekki rekinn í hagnaðarskyni. Ef hugmyndafræði viðskiptabanka verður ofan á í rekstri og stjórnun Íbúðalánasjóðs – ef hugmyndafræði hagnaðar tekur við af hugmyndafræði sjálfbærni – ef hugmyndafræði fjármagnsins tekur við af hugmyndfræði samfélagslegrar ábyrgðar – þá er tilvistargrunnur Íbúðalánasjóðs fyrir bí. Þá er rétt að leggja Íbúðalánasjóð niður og færa íbúðalánin alfarið til banka og annarra fjármálafyrirtækja. En auðvitað eigum við að standa vörð um Íbúðalánasjóð sem sjálfbæran, samfélagslegan lánasjóð sem tryggir landsmönnum öllum, hvar sem þeir búa, „öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum“. Þrátt fyrir að í landinu ríki hrein vinstri stjórn sem ætti að öllu jöfnu að berjast fyrir tilvist samfélagslegs Íbúðalánasjóðs, þá virðast blikur á lofti. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru vísbendingar um að samfélagslegt hlutverk Íbúðalánasjóðs verði í öðru sæti, en hugmyndafræði viðskiptabanka, hagnaðar og fjármagns verði sett í fyrsta sæti. Það er hlutverk stjórnvalda, nýrrar stjórnar Íbúðalánasjóðs og framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs að tryggja áfram samfélagslega stöðu sjóðsins. Það er hlutverk stjórnvalda, nýrrar stjórnar Íbúðalánasjóðs og framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs að tryggja landsmönnum öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum. Það er hlutverk okkar, þjóðarinnar, að veita stjórnvöldum, stjórn Íbúðalánasjóðs og framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs stuðning og aðhald svo samfélagslegu hlutverki Íbúðalánasjóðs verði ekki fórnað. Það er að hefjast enn eitt stríðið um samfélagslegt hlutverk Íbúðalánasjóðs.
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar