Hvaða framandi lífverur eru umhverfisvandamál á Íslandi? Seinni hluti 23. febrúar 2011 11:00 Hópur fjórtán vistfræðinga mundar stílvopnið í grein í Fréttablaðinu þann 20. janúar síðastliðinn, undir yfirskriftinni „Ágengar framandi lífverur eru umhverfisvandamál". Helstu rök sem fjórtánmenningarnir færa fyrir nauðsyn á altæku banni, með sértækum eftir á undanþágum, við innflutningi og dreifingu framandi lífvera er annars vegar þeirra eigin túlkun á því hvað felst í aðild Íslands að alþjóðasamningum og hins vegar að þeir sjálfir og að heita má allt „vistfræðasamfélagið" sé sammála þeirri túlkun. Fyrir hvorugri skoðun eru færð viðunandi rök í greininni og heldur ekki í frumvarpstillögunum um breytingar á völdum kafla náttúruverndarlaganna. Hitt þarf hin íslenska þjóð að fá að vita, að í hinum alþjóðlega fræða- og vísindaheimi er mjög að aukast gagnrýni á „innrásarlíffræðinga" meðal vistfræðinga, fyrir skort á gagnrýni, raunprófunum og öðrum viðurkenndum vísindalegum vinnubrögðum. Verulegar efasemdir eru komnar fram um vísindalegar forsendur þeirra staðhæfinga sem hafðar eru uppi og það óljósa orðfæri um þá „gríðarlegu ógn sem líffjölbreytni stafar af framandi ágengum tegundum". Sérstaklega á það við um hlut plantna sem orsök tegundaútrýmingar eða minnkandi líffjölbreytni þótt tilflutningur þekktra afránsdýra sé varhugaverður. Hvergi í íslenskum rannsóknum hefur heldur komið fram að innflutningur og dreifing á framandi lífverum hafi valdið tjóni á líffræðilegri fjölbreytni hérlendis nema helst sú að minkur hefur breytt varphegðun fugla og hugsanlega haft önnur staðbundin áhrif. Engri plöntutegund hefur verið útrýmt af innfluttum plöntutegundum svo vitað sé og fjölbreytni gróðurríkisins hefur sannanlega aukist þegar talið er í tegundum og fjölbreytileika vistkerfa. Við sjáum merki þess hvar sem við förum um landið okkar. Margar eftirsóknarverðar fuglategundir hafa fundið sér búsvæði og fjöldi nytsamra skordýra einnig. Það kann að vera að menn greini á um útbreiðslu einstakra tegunda á einstökum svæðum – en tjón á eiginlegri líffjölbreytni hefur ekki verið sýnt fram á. Því teljum við óþarfa að setja um slíkt íþyngjandi lög sem leggjast sem lamandi hönd yfir samfélagið en ná samt ekki tilgangi sínum. Vilji fjórtánmenningarnir sannfæra fólk um að fjárhagslegur, heilsufarslegur eða umhverfislegur skaði af einhverjum tilteknum tegundum sé meiri en ágóðinn, þá hafa þeir öll tækifæri til þess. Þeir geta t.d. farið að stunda rannsóknir á áhrifum framandi tegunda hér á landi og þá haft þær af þeim gæðum sem duga til að fá þær birtar í ritrýndum tímaritum. Á slíkar vísindalegar niðurstöður yrði hlustað. Skógargeirinn hefur verið tilbúinn að stuðla að slíkum rannsóknum, m.a. með verkefninu Skógvist sem unnið var af samviskusemi fyrir nokkrum árum og sýndi fram á að líffjölbreytni (tegundafjölbreytni) minnkaði ekki þegar skógar erlendra trjátegunda voru ræktaðir á mólendi og líffjölbreytnin í þeim skógum var síst minni en í skóglendum innlendra tegunda. Enda er talið að skógar heims hýsi um 80% lífbreytileika á landi. Samkvæmt sáttmálanum um líffræðilega fjölbreytni skipta vernd og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni miklu máli í tengslum við að mæta fæðu-, heilsufars-, og öðrum þörfum sífellt fleira fólks í heiminum og í þeim tilgangi er mikilvægt að hafa aðgang að og deila bæði erfðaauðlindum og tækni. Samkvæmt þessu eru nytjaplöntur sameiginleg arfleifð alls mannkyns. Innflutningur nytjaplantna er, hefur verið og mun áfram verða til aukinnar hagsældar fyrir íbúa þessa heims og ein helsta leiðin til að fullnægja sívaxandi þörfum íbúa jarðarinnar fyrir endurnýjanlegar auðlindir í heimi vaxandi fólksfjölda. Þetta er inntakið í Rio-samningnum en ógn af völdum framandi lífvera er aukaatriði. Gagnrýnin hugsun er einnig ein af forsendum framfara og hornsteinn góðs fræðasamfélags. Trúarkennd og villandi samsuða loðinna og þokukenndra hugtaka sem sett er fram af „fræðasamfélagi", að því er virðist í þeim eina tilgangi að valda ruglingi, hafa pólitísk áhrif og láta tilganginn helga meðalið, er ekki líkleg til að auka hróður þess samfélags né bæta orðræðuna í samfélaginu almennt. Við gerum kröfu á hendur þessum félögum okkar í heimi raunvísinda um vísindalega grundaða umræðu og vandaðri vinnubrögð. Vísindaleg niðurstaða verður ekki sönnuð með neinum meirihluta. Til þess að viðunandi sátt náist um niðurstöðu er öllu meira gagn af vönduðum rannsóknum ásamt opinni og hreinskiptinni umræðu meðal fræðimanna og sem víðast í samfélaginu. Dr. Aðalsteinn Sigurgeirsson, skóg- og erfðafræðingur, formaður Skógfræðingafélags Íslands; dr. Þröstur Eysteinsson, sviðstjóri þjóðskóganna, Skógrækt ríkisins, (SR); dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður Garðyrkjufélags Íslands (GÍ); dr. Alexander Robertson, skógfræðingur, prófessor emeritus; Barbara Stanzeit, líffræðingur, fræmeistari GÍ; Björn B. Jónsson, skógfræðingur; framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda (LSE); Brynjólfur Jónsson, skógfræðingur; framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands (SÍ); dr. Dóra Lúðvíksdóttir, læknir; Edda Björnsdóttir, formaður LSE; Einar Gunnarsson, skógfræðingur, SÍ; Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur, varaformaður GÍ; Jón Loftsson, skógfræðingur, skógræktarstjóri, SR; Magnús Gunnarsson, viðskiptafræðingur, formaður SÍ; Ragnhildur Freysteinsdóttir, umhverfisfræðingur, SÍ; Sigríður Hjartar, lyfja- og sagnfræðingur, fv. formaður GÍ; Valborg Einarsdóttir, garðyrkjufræðingur, framkvæmdastjóri, GÍ; dr. Ragnar Árnason, prófessor við Hagfræðideild HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun