Enn óvissa með Jósef Kristin - FIFA komið í málið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. júlí 2011 22:00 Jósef í leik með Grindvíkingum síðasta sumar.
Lítið gengur í deilum Grindvíkingsins Jósefs Kristins Jósefssonar við búlgarska félagið PSFC Chernomorets Burgas. Jósef, sem æft hefur með Grindvíkingum undanfarnar vikur, hefur enn ekki fengið laun greidd frá félaginu sem ennfremur neitar honum um félagaskipti. „Honum er eiginlega haldið í gíslingu. Hann er búinn að æfa á fullu (með Grindavík) og kominn í mjög gott stand. Hann iðar í skinninu að fá að spila," sagði Þorsteinn Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur við blaðamann Vísis í dag. Félagaskiptaglugginn lokar á Íslandi á sunnudaginn og því ákjósanlegt fyrir Jósef Kristinn og Grindavíkur að leysist úr málunum fyrr en síðar. „Við vonum að Jobba málið leysist en það er erfitt og flókið mál. Það skýrist ekki fyrr en í lok gluggans hvort það detti inn eða ekki. Við höfum ekki útilokað það ennþá en það er það flókið að við erum ekkert sérstaklega bjartsýnir," segir Þorsteinn. Búlgarska félagið hefur ekki greitt Jósef Kristni laun síðan hann gekk til liðs við félagið sem hann samdi við í febrúar síðastliðnum. „Góðu fréttirnar eru þær að alþjóða knattspyrnusambandið er komið í málið og er að þjarma að búlgarska liðinu sem hefur ekki staðið við eitt né neitt. Þetta er ekki spurning um hvort heldur hvenær Jobbi kemur til okkar. En ég er voða smeykur um að það náist ekki í þessum glugga, því miður," sagði Þorsteinn. Búlgarska félagið hefur heldur ekki greitt síðari hlutann af félagaskiptagreiðslunni til Grindvíkinga.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira