Íslenski boltinn

ÍBV og Örebro komast að samkomulagi um kaupverð á Eiði Aroni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eiður Aron í baráttu við Matthías Guðmundsson á Valsvellinum fyrr í sumar.
Eiður Aron í baráttu við Matthías Guðmundsson á Valsvellinum fyrr í sumar. Mynd/HAG
ÍBV og sænska knattspyrnufélagið Örebro hafa komist að samkomulagi um kaupverðið á varnarmanninum Eiði Aroni Sigurbjörnssyni. ÍBV hafnaði tveimur tilboðum frá sænska liðinu og sendu Örebro gagntilboð sem Svíarnir samþykktu. Rúv greindi frá þessu í gærkvöldi.

Eiður Aron á enn eftir að gangast undir læknisskoðun ytra og semja um kaup og kjör. Hann hefur spilað mjög vel í hjarta varnarinnar í sumar með Dananum Rasmus Christiansen. Brotthvarf Eiðs Arons yrði mikil blóðtaka fyrir Eyjamenn sem eiga þó Brynjar Gauta Guðjónsson fyrrum fyrirliða Víkings í Ólafsvík á bekknum.

Eiður Aron sem er 21 árs var valinn í úrvalslið umferða 1-11 í Pepsi-deild karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×