Góði Besti, passaðu skólana Hildur Björg Hafstein skrifar 11. febrúar 2011 12:56 Enn einu sinni á að skera niður í grunnskólum borgarinnar. Segja má með sanni að foreldrar grunnskólabarna hafa verið ansi skilningsríkir á niðurskurð sl. tveggja ára. Ekki heyrðist mikið þegar viðbótarkennslustund 1.-4. bekkjar var tekin burt, gæsla í frímínútum snarminnkaði, forfallakennslu var ekki sinnt. En ekki heyrðist stuna í foreldrum því allir höfðu skilning á að nú þyrfti að spara. En nú sjá foreldrar, og allir sem vilja, að ekki verður gengið lengra í niðurskurði i skólum. Þar sem borgarfulltrúar Besta flokksins hafa oft borið við reynsluleysi þá er rétt að útskýra nokkuð fyrir þeim. Formaður menntaráðs ætti að geta útskýrt þetta líka: Nemendur hafa ekki aðrar leiðir til að bæta sér það sem þeir missa þessi niðurskurðarár. Ef strætóferðum er fækkað þá blasir við að strætófarþegar finna aðrar leiðir til að komast leiðar sinnar. Þetta geta nemendur ekki. Námið þeirra næstu tvö ár verður ekki endurtekið eða farið eitthvert annað í skóla. Þetta er mikilvægt að hafa í huga. Annað er mikilvægt að hugsa líka. Ef gæsla er felld niður í frímínútum og matsal þar sem hætta er á einelti er þá ekki líklegt að einelti og ágreiningur komi til kasta kennarans í kennslustund og af því leiðir að tími til náms minnkar enn frekar? Og ég tala nú ekki um eineltið sem hætta er á að magnist til muna. Niðurskurðurinn hjá grunnskólum nú er sagður tímabundinn í tvö ár. Í eyrum stjórnmálamanna er það eftir vill stutt en ég veit að tvö ár af 10 árum í grunnskóla er þó nokkuð. 20% segi ég og skrifa. Það þarf ekki að leita langt að peningahítum til að sækja pening í stað þess að sækja þá til skólanna. Yfirbygging grunnskólanna er nokkuð stór. Mætti t.d. stöðva nokkur verkefni á menntasviði tímabundið í tvö ár? Sleppa ráðstefnum með erlendum fyrirlesurum, tímabundið í tvö ár? Er ekki hægt að gera allt áður en sælst er í tóma buddu skólanna? Ég skora á alla borgarfulltrúa að taka undir með foreldrum og skólafólki í Reykjavík og segja: Hingað og ekki lengra. Grunnskólar Reykjavíkur hafa sannarlega staðið sig vel í hagræðingu og niðurskurði. Mér finnst það í raun mesta furða hversu vel þeir hafa staðið sig. Er ekki rétt að leyfa þeim að starfa óbreytt í nokkur ár án frekari niðurskurðar eða a.m.k setja stefnu um hvernig skóla við viljum en ekki bjóða foreldrum og nemendum árlega upp á bútasaumsniðurskurð sem grefur undan námi krakkanna. Þetta myndi múmínmamma aldrei gera. Meira að segja ekki Morrinn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar