Óskar: Ég var orkulaus tannstöngull í fyrra Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. október 2011 07:30 Óskar fagnar hérna áframhaldandi úrvalsdeildarsæti í Vestmannaeyjum. fréttablaðið/óskar pétur „
Ég skil ekki alveg þessa umræðu um að ég sé búinn að grenna mig svona mikið. Ég var tíu kílóum léttari í fyrra. Þá var ég orkulaus tannstöngull. Ég er búinn að massa mig nokkuð upp síðan þá og er í allt öðru og betra formi,“ segir Óskar Pétursson, markvörður Grindavíkur, en hann er leikmaður lokaumferðar Pepsi-deildarinnar hjá Fréttablaðinu. Óskar fór á kostum í marki Grindavíkur í Eyjum og varði meðal annars víti frá Tryggva Guðmundssyni. Óskar hefur hagað sínum undirbúningi öðruvísi í sumar en oft áður. Lagt meira á sig og það hefur skilað sér. „Ég tók sjálfan mig í gegn og fylltist meiri metnaði en áður. Loksins áttaði ég mig á því að að þetta kemur ekki af sjálfu sér. Ég hef alltaf unnið mikið með fótboltanum en ég tók mér frí frá vinnu í sumar. Fór að þjálfa í stað þess að vera í verkamannavinnu. Þá gat ég æft meira og ég var að æfa í svona tvo og hálfan tíma á dag.“ Frammistaða Óskars í sumar hefur ekki farið fram hjá forráðamönnum annarra liða og einhver lið munu eflaust bera víurnar í þennan 22 ára gamla markvörð. „Ég hef heyrt ýmislegt út undan mér en ekki fengið nein símtöl sjálfur,“ segir Óskar en hann útilokar ekki að hann reyni fyrir sér á nýjum vígstöðvum þó svo hann sé enn samningsbundinn Grindavík. „Mér líður vel í Grindavík en ég þarf að sjá til. Nú verður sest niður og hugsað um framtíðina og hvað sé best að gera.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Fleiri fréttir Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Sjá meira