Ótti við sektir hvetur kjósendur 30. nóvember 2011 10:00 Sýnir persónuskilríki Egypsk kona bíður á kjörstað eftir því að röðin komi að henni.Fréttablaðið/AP
Ótti almennings í Egyptalandi við sektir, sem herforingjastjórnin hefur hótað að leggja á hvern þann sem ekki tekur þátt í þingkosningunum, kann að eiga sinn þátt í því hve góð kosningaþátttakan hefur verið þessa tvo fyrstu daga. Fólk hefur flykkst á kjörstaðina og aðstoðað aldraða eða sjúka ættingja, sem eiga erfitt um fótaferð, við að komast á staðinn. Þessi mikla kosningaþátttaka gengur þvert á afstöðu mótmælenda, sem treysta ekki herforingjastjórninni til að halda frjálsar kosningar. Að mestu leyti virðast kosningarnar hafa farið vel fram. Víða hafa þó stjórnmálaflokkar sent liðsmenn sína á kjörstaði, í orði kveðnu til þess að aðstoða kjósendur við að komast á réttan stað, en í reynd ekki síður til að dreifa kosningaáróðri og tala fyrir málstað síns flokks. Iðnastir við þetta hafa verið flokkar íslamista, sem fyrir fram er spáð flestum atkvæðum. Frjálslyndari flokkar og veraldlega sinnaðir hafa margir gengið sundraðir og veikburða til kosninganna, ekki síst vegna innbyrðis deilna um það hvort rétt sé að taka þátt í kosningunum af heilum hug eða beina kröftunum frekar að því að krefjast afsagnar herforingjastjórnarinnar.- gb
Fréttir Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira