Fylkismenn líklega með táning í markinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. maí 2011 08:00 Fjalar Þorgeirsson, markvörður Fylkis, má ekki spila með liðinu í bikarleiknum gegn FH á fimmtudaginn. Fréttablaðið/Pjetur
Ísak Björgvin Gylfason, átján ára markvörður úr 2. flokki Fylkis, mun að öllum líkindum standa í marki Fylkis þegar liðið mætir bikarmeisturum FH í 32-liða úrslitum Valitor-bikarkeppninnar annað kvöld. Fjalar Þorgeirsson verður í banni og Bjarni Þórður Halldórsson er enn meiddur. Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, segir að félagið hafi ekki skoðað þann möguleika að fá markvörð á neyðarláni til félagsins þar sem búið er að loka fyrir félagaskiptagluggann. „Það gæti orðið ofan á að hann muni spila þennan leik,“ segir Ólafur um Ísak Björgvin. „Eins og er þá er útlit fyrir það. Þetta er strákur sem hefur verið að standa sig vel með 2. flokki og um að gera að láta á það reyna. Einhvern tímann verður að nota þessa drengi,“ segir hann í léttum dúr. Bjarni Þórður er með brotinn fingur og er enn í gifsi. Það kemur því ekki til greina að hann spili leikinn gegn FH. Fylkismenn fengu tvö rauð spjöld í leiknum gegn Breiðabliki á sunnudagskvöldið. Fyrst Valur Fannar Gíslason og svo Fjalar stuttu síðar. Þá meiddist Albert Brynjar Ingason og óvíst hvort hann verður með gegn FH. „Það verður að koma í ljós þegar líður á vikuna en ég er vongóður um að Kjartan Ágúst Breiðdal og Baldur Bett séu að komast á lappirnar, sem og Rúrik Þorfinnsson,“ bætir Ólafur við að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira