Ábyrgð veðurfræðinga Sigurður Jônsson skrifar 6. janúar 2011 06:00 Ekki fer á milli mála að á Íslandi er áhugi á veðri og náttúrufari e.t.v. öllu meiri en í mörgum öðrum löndum og einkennir daglega umræðu Íslendinga. Því vekur það ætíð furðu mína að veðurupplýsingar fjölmiðla skuli vera jafn ónákvæmar,- já og beinlínis hættulegar og raun ber vitni. Er ekki laust við að maður telji þetta meðal ástæðna fyrir óvarkárni fólks sem leggur illa búið á stað í ferðir innanlands og lendir síðan í hrakningum og vosbúð sem getur jafnvel orðið því að aldurtila. Þetta eru býsna þungar ásakanir, en orsök þeirra er sú, að ólíkt flestum veðurfréttum erlendis þá er kæling ekki tilgreind í veðurfréttum hér á landi auk skyggnis, vindáttar og úrkomu og hitastigs. Þessi samtíningur upplýsinga og vöntun á upplýsingum um áhrif þeirra, nefnilega kælingu, gefur því ófullkomna mynd af veðráttu og áhrifum hennar á fólk. Raunar alranga ef aðeins er miðað við hitastig. Þannig er t.d. í dag, 4.janúar 2010 þegar þetta er skrifað, hitastig í Reykjavík uppgefið af Veðurstofu Íslands -4°C og ekki þarf að efast um að þetta eru réttar upplýsingar. En fari maður inn á útlendar veðurvefsíður eins og t.d. www.yr.no sem er býsna góð norsk vefsíða, þá sést að þetta hitastig ásamt vindinum myndar kælingu sem finnst sem -13°C. Á fimmtudag er á sömu vefsíðu spáð -8°C hitastigi í Reykjavík sem finnst sem -18°C kæling. Það er augljóst að íslenskir veðurfræðingar eru jafn hæfir þeim norsku til að veita upplýsingar um kælingu, sem eru hagnýtar upplýsingar fyrir fólk til þess að það viti hver eru áhrif veðurs á menn og skepnur. Hér með er skorað á íslenska veðurfræðinga og fjölmiðla að flétta birtingu á kælingu inn í veðurfréttir sínar og veðurspár þannig að þetta verði hagnýtar upplýsingar og stuðla þannig á ábyrgan hátt að því að fólk búi sig í samræmi við veðurfar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun Skoðun Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvað plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ef ég C með hattinn, fer ég örugglega í stuð Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Siglunes, já eða nei? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Heimsveldið og hjúkrunarkonan Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Lægri vextir eru STÓRA MÁLIÐ Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Tækni með tilgang Einar Stefánsson skrifar Skoðun Bretland og Norðurslóðir Bryony Mathew skrifar Skoðun Þegar óttinn verður að röksemd Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar Skoðun Hversu oft má samgöngukerfi bregðast? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður, höfnin, samgöngur og samfélagið Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Eru huldufólk enn til eða höfum við hætt að sjá það? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði eru mannréttindi - líka í Hafnarfirði Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar Skoðun Hvernig get ég aðstoðað? Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið í fyrsta sæti Daði Pálsson skrifar Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson skrifar Sjá meira
Ekki fer á milli mála að á Íslandi er áhugi á veðri og náttúrufari e.t.v. öllu meiri en í mörgum öðrum löndum og einkennir daglega umræðu Íslendinga. Því vekur það ætíð furðu mína að veðurupplýsingar fjölmiðla skuli vera jafn ónákvæmar,- já og beinlínis hættulegar og raun ber vitni. Er ekki laust við að maður telji þetta meðal ástæðna fyrir óvarkárni fólks sem leggur illa búið á stað í ferðir innanlands og lendir síðan í hrakningum og vosbúð sem getur jafnvel orðið því að aldurtila. Þetta eru býsna þungar ásakanir, en orsök þeirra er sú, að ólíkt flestum veðurfréttum erlendis þá er kæling ekki tilgreind í veðurfréttum hér á landi auk skyggnis, vindáttar og úrkomu og hitastigs. Þessi samtíningur upplýsinga og vöntun á upplýsingum um áhrif þeirra, nefnilega kælingu, gefur því ófullkomna mynd af veðráttu og áhrifum hennar á fólk. Raunar alranga ef aðeins er miðað við hitastig. Þannig er t.d. í dag, 4.janúar 2010 þegar þetta er skrifað, hitastig í Reykjavík uppgefið af Veðurstofu Íslands -4°C og ekki þarf að efast um að þetta eru réttar upplýsingar. En fari maður inn á útlendar veðurvefsíður eins og t.d. www.yr.no sem er býsna góð norsk vefsíða, þá sést að þetta hitastig ásamt vindinum myndar kælingu sem finnst sem -13°C. Á fimmtudag er á sömu vefsíðu spáð -8°C hitastigi í Reykjavík sem finnst sem -18°C kæling. Það er augljóst að íslenskir veðurfræðingar eru jafn hæfir þeim norsku til að veita upplýsingar um kælingu, sem eru hagnýtar upplýsingar fyrir fólk til þess að það viti hver eru áhrif veðurs á menn og skepnur. Hér með er skorað á íslenska veðurfræðinga og fjölmiðla að flétta birtingu á kælingu inn í veðurfréttir sínar og veðurspár þannig að þetta verði hagnýtar upplýsingar og stuðla þannig á ábyrgan hátt að því að fólk búi sig í samræmi við veðurfar.
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun
Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar
Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar
Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar
Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar
Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun