Þórarinn Ingi: Hann er klókur kallinn Valur Smári Heimisson skrifar 22. ágúst 2011 07:00 Þórarinn Ingi Valdimarsson. Mynd/Hag
Þórarinn Ingi Valdimarsson var hetja Eyjamanna í 2-1 sigri á Keflavík á Hásteinsvellinum í gær. Þórarinn skoraði sigurmarkið fjórum mínútum fyrir leikslok og Eyjamenn minnkuðu þar með forskot KR á toppnum í eitt stig. Hinn síungi Tryggvi Guðmundsson átti glæsilega fyrirgjöf á Þórarin í sigurmarkinu og Þórarinn gerði allt rétt þegar hann stangaði boltann í netið. „Það var nú bara þannig að gamli maðurinn setti boltann bara beint á pönnuna á mér og ég þurfti ekki að gera mikið til að skora," sagði Þórarinn, en þetta var aðeins annað markið á ferlinum sem hann skorar með skalla. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var mikið að færa menn til í fyrri hálfleik. Brynjar Gauti Guðjónsson byrjaði í miðverði með Rasmus Christiansen en var svo færður á miðjuna um miðjan fyrri hálfleik. Andri Ólafsson var á sama tíma færður í miðvörðinn úr framherjastöðunni. „Við byrjuðum í 4–3–3 og ætluðum að setja á þá strax en það var ekki að ganga því við náðum engum tökum á leiknum. Þegar við breyttum í 4–5–1 náðum við spilinu okkar í gang. Hann er klókur kallinn og sá strax að þetta gekk ekki hjá okkur og breytti uppstillingunni," sagði Þórarinn. Næsti leikur Eyjamanna er á móti KR-ingum og nú munar aðeins einu stigi á liðinum en KR-ingar eiga þó tvo leiki til góða. „Ef menn ætla að vera í þessu langar mann að spila svona leiki. Þetta er algjör lykilleikur á þessu sumri, menn geta ekki verið neitt hræddir og við förum bara í þennann leik til að vinna. Við ætlum að gera allt svo að bikarinn fari ekki í Vesturbæinn, það er alveg á hreinu," sagði Þórarinn Ingi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira