Ólafur Þórðar: Vanur lélegum afmælisgjöfum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. ágúst 2011 21:00 Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis. Mynd/HAG „
Ég fékk líka svona afmælisgjöf í fyrra - þannig að ég er vanur,“ sagði afmælisbarnið Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, eftir tap sinna manna gegn Blikum í kvöld. Hann segir að leikurinn í kvöld, sem Blikar unnu 2-1, hafi borið þau einkenni að liðin tvö sem mættust væru að berjast fyrir litlu öðru en stoltinu. „Það var í sjálfu sér vitað þetta yrði svona. En mér fannst við svo sem berjast ágætlega í þessum leik. En okkur skortir meiri reynslu til að klára leiki eins og þennan betur en við gerðum.“ Fylkismenn komust yfir snemma leiks með marki Ásgeirs Arnar Arnþórssonar en það dugði ekki til. „Það var vel gert hjá honum en heilt yfir vantaði gæði í okkar leik. Þetta er það sama og maður hefur verið að segja að undanförnu - það breytist ekkert á þessu sumri. En þetta er góð reynsla fyrir þessa ungu stráka sem fá nú að spila.“ Einn þeirra er Hjörtur Hermannsson sem er aðeins sextán ára gamall. „Hann stóð sig vel og ég ætlast ekki til þess að þessir strákar beri þennan leik uppi.“ Markaskorarinn Ásgeir Örn var settur í bakvörðinn í seinni hálfleik þar sem að Trausti Björn Ríkharðsson var tekinn út af. „Trausti var aðeins meiddur og átti erfitt uppdráttar í bakverðinum. Þess vegna gerðum við þessa breytingu og hún hefði getað borið betri ávöxt ef Rúrik hefði klárað færið sitt betur.“ „Ásgeir var búinn að vera góður og var það áfram. Þessi breyting olli engum straumhvörfum í leiknum.“ Blikar fóru upp fyrir Fylki í töflunni í kvöld en bæði lið eru um miðja deild með nítján stig. „Við verðum að nota þennan tíma sem eftir er af deildinni til að gefa þessum strákum mínútur og halda áfram að byggja upp liðið. Það er í raun ekkert flókið.“ „Ég er ekkert sáttur við að hafa nítján stig þó svo að margir aðrir séu ágætlega sáttir við það. Maður vill bara meira - þess vegna er maður í þessu.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira