Bjarnólfur: Með einum sigri gæti komið trú í liðið Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 22. ágúst 2011 22:26 Bjarnólfur Lárusson þjálfari Víkings. Mynd/Daníel
Bjarnólfur Lárusson þjálfari Víkings horfir enn jákvæður fram á vegin þó lið hans hafi tapað tveimur mikilvægum stigum í kvöld með markalausu jafntefli í Grindavík. „Leikurinn var jafn og bæði lið ætluðu að sækja þessi þrjú stig sem voru í boði og við reyndum það. Spilamennskan hjá mínum mönnum var mjög góð á köflum fannst mér. Við héldum boltanum mjög vel en við sköpuðum okkur ekki opin tækifæri en ég var mjög ánægður með að halda hreinu í þessum leik,“ sagði Bjarnólfur eftir leikinn. „Við vorum sterkir varnarlega. Það var mikilvægt að halda hreinu og það hefði mátt gerast fyrr í sumar. Fram á við vantaði brodd í þetta,“ sagði Bjarnólfur sem vildi ekki taka svo djúpt í árina að jafntefli hafi verið vond úrslit fyrir Víking. „Við þurfum sárlega á þremur stigum að halda í hverjum leik núna en þetta eru ekki vond úrslit. Við töpuðum ekki og það heldur smá von í þessu þó hver stig sem farin eru verði ekki aftur tekin.“ „Ég horfi á þetta leik fyrir leik. Það er langt í næstu lið en grunnurinn í liðinu er orðinn góður og með einum sigri gæti komið trú í liðið sem gæti fleytt okkur áfram. Við erum að glíma við það að ná í sigurleik sem hafa ekki verið margir í sumar,“ sagði Bjarnólfur en besti kafli Víkings kom þegar stutt var til leiksloka og liðið sýndi vilja sinn til að vinna leikinn þó það hafi ekki skapað sér færi til að sækja stigin þrjú. „Það var mikill vilji í liðinu í kvöld, sem var betra en í síðasta leik. Við gáfum allt í þetta í lokin. Við höfum fulla trú á þessu verkefni þó það sé búið að dæma okkur niður. Við gefum okkur alla í þetta og sjáum hvert það fleytir okkur,“ sagði Bjarnólfur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Sjáðu Árna bjarga sjálfum sér en fá svo á sig jöfnunarmark langt utan af velli Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Sjáðu Hallgrím Mar klára KR-ingana á fjórum mínútum „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Hundur vildi prófa nýja gervigrasið og fór inn á völlinn í Eyjum Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum ÍR á toppinn en fjögur rauð spjöld og allt vitlaust í lokin Allison með fyrsta markið á nýjum Hásteinsvelli Mæta Víkingum á nýlögðu gervigrasi í Eyjum Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Sjáðu glæsimark Óla Vals og öll hin í Mosfellsbæ Halldór: „Þetta er kannski lægsta orku-level sem ég hef séð hjá liðinu í sumar“ Njarðvíkingar flugu á toppinn með stórsigri í Grindavík Uppgjörið: Afturelding-Breiðablik 2-2 | Meisturum Blika fataðist flugið Þróttarar breyttu tapi í sigur með tveimur mörkum í lokin Fær tveggja leikja bann fyrir hártogið Varð fullorðinn úti „Reisn“ yfir ákvörðun Jóns Daða sem gaf stórliðunum langt nef „Eitt það versta sem ég hef séð síðustu ár“ „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Sjá meira