Innlent

Gjöf Ásgeirs forseta á uppboði á Ebay

Bréfapressan er auglýst til sölu og er lágmarksboð 400 þúsund krónur. Fjögur tilboð hafa borist frá ónafngreindum aðilum.
Bréfapressan er auglýst til sölu og er lágmarksboð 400 þúsund krónur. Fjögur tilboð hafa borist frá ónafngreindum aðilum.
Bréfapressa sem Ásgeir Ásgeirsson forseti gaf Zalman Sashar, forseta Ísraels, að gjöf í heimsókn sinni til Ísraels 28. mars 1966 er nú til sölu á uppboðsvefnum Ebay. Þetta var söguleg heimsókn því Ásgeir var fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn til að ávarpa ísraelska þingið, Knesset.

Ísraelska skartgripa- og antíkverslunin Pasarel auglýsir bréfapressuna til sölu en hvergi er þess getið hvernig verslunin eignaðist gripinn. Lágmarksboð er 400 þúsund krónur. Í gær höfðu fjögur tilboð borist í bréfapressuna frá nafnlausum bjóðendum.

Á uppboðsvefnum er bréfapressan sögð í góðu ástandi þótt aðeins sjái á henni. Hún er ferköntuð. Á hliðunum eru skjaldarmerki þjóðanna tveggja og nöfn forsetanna rituð. Ofan á henni er Davíðsstjarnan.

Í Morgunblaðinu 29. mars 1966 er sagt frá heimsókn Ásgeirs til Ísraels bæði á forsíðu og inni í blaðinu. Um heimsóknina segir: „Forseti þess lands, sem elzta þjóðþing á í heimi hér, ávarpaði í dag eitt yngsta þing veraldar. Þessi atburður var skráður á spjöld sögunnar í Jerúsalem í dag er forseti Íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, steig í ræðustól þjóðþings Ísrael, Knesset, til þess að flytja kveðjur frá þjóð sinni og lýsa „frá hjarta íslenzku þjóðarinnar þeirri von að þjóð Ísrael megi njóta friðar og hagsældar um alla eilífð.“

Morgunblaðið fjallaði einnig lítillega um gjöfina, en um hana segir: „Forsetarnir skiptust á gjöfum. Forseti Íslands færði Ísraels­forseta bréfapressu að gjöf, íslenska silfursmíði, og er ofan á henni stjarna Davíðs úr gulli.“

Á uppboðsvefnum kemur ekki fram hvaða listamaður hefur gert bréfapressuna. Þess má samt geta að Ásgeir forseti gaf Sir Alec Douglas-Home, forsætisráðherra Bretlands, bréfapressu eftir Leif Kaldal gullsmið árið 1963.

Örnólfur Thorsson, ritari forseta, segir að vegna þess hversu fátítt sé að gjafir forsetans séu seldar hafi hvorki nú né áður komið til álita að embættið keypti aftur gjafirnar.

„Við þekkjum afar fá dæmi um að opinberar gjafir sem forsetar hafa færst öðrum þjóðhöfðingjum séu boðnar til kaups á opinberum markaði,“ segir Örnólfur. „Eftir að gjafir eru gefnar, hvort sem það eru þjóðhöfðingjar sem þær þiggja eða aðrir, er gjöfin, eðli máls samkvæmt, eign þess sem hana þiggur eða þess embættis sem hann gegnir í samræmi við þær reglur sem fylgt er hverju landi.“trausti@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×