Eitt öflugt slökkvilið 29. apríl 2011 06:00 Ó. Ingi Tómasson aðalvarðstjóri Keflavíkurflugvelli Við stofnun Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins bs. (SHS) þann 1. júní árið 2000 urðu ákveðin kaflaskil í rekstri slökkviliða á Íslandi. Slökkvilið Reykjavíkur ásamt Slökkviliði Hafnarfjarðar runnu í eitt og úr varð öflugt og vel rekið slökkvilið sem þjónar höfuðborgarsvæðinu af miklum myndarskap og veitir íbúum nú ákveðna öryggiskennd vitandi um þá þjónustu sem SHS veitir. Við brotthvarf Varnarliðsins 1. okt. 2006 varð eftir ákveðin óvissa um skyldur slökkviliða á Suðurnesjum er varða gamla varnarsvæðið og Keflavíkurflugvöll. Við og á flugvellinum eru rekin þrjú slökkvilið, Slökkvilið Keflavíkurflugvallar, Brunavarnir Suðurnesja (BS) og Slökkvilið Sandgerðis. Aukið flækjustigJón E. Árnason varðstjóri KeflavíkurflugvelliÞar til nýverið sá Slökkvilið Keflavíkurflugvallar alfarið um alla slökkvi- og björgunarþjónustu á flugvellinum þ.e. allar byggingar og flugvélar auk viðbúnaðar vegna eiturefnaslysa. Eins og nú háttar, eiga þrjú áðurgreind slökkvilið að sjá um þessa þjónustu. Slökkvilið Keflavíkurflugvallar á að sjá um flugslys og eld í flugvélum jafnt utan sem innandyra. BS á að sjá um allar byggingar á eystra svæði flugvallarins jafnt flugskýli sem aðrar byggingar og Slökkvilið Sandgerðis á að sjá um allar byggingar og flugskýli vestan til á flugvellinum. Komið er upp allnokkurt flækjustig er varðar útköll og boðun slökkviliða í byggingar á flugvellinum og má þar nefna eftirfarandi: Verði eldur í flugskýli á Keflavíkurflugvelli mun BS verða boðað, Slökkvistöð BS er staðsett í Keflavík. Sé hins vegar flugvél inni í áðurnefndu flugskýli, ber Slökkviliði Keflavíkurflugvallar að mæta og slökkva í flugvélinni og þá er þetta væntanlega spurning hvort greinarmunur sé gerður í brunaboði frá flugskýli með og án flugvélar, þetta á reyndar við öll flugskýli á flugvellinum. Sama er að segja um t.d. flugturninn á Keflavíkurflugvelli, komi brunaboð frá flugturni, þá fer slökkviliðsmaður frá Slökkviliði Keflavíkurflugvallar og athugar hvort um bilun í kerfi sé að ræða, sé hinsvegar eldur í byggingunni þá hringir slökkvilið flugvallarins sem staðsett er steinsnar frá flugturni, í BS sem kemur frá Keflavík og sér um að slökkva eldinn. Allur þessi hrærigrautur leiðir til óvissu og ómarkvissra viðbragða. Óvissa sem hefur verið í kringum slökkvilið Keflavíkurflugvallar með kröfu Isavia ohf. um að slökkvilið flugvallarins verði í raun lagt niður í núverandi mynd og einskonar viðbúnaðarþjónusta komi í staðinn, er einungis til þess fallin að auka á þá ringulreið sem er nú þegar í slökkvi- og björgunarþjónustu flugvallarins. Sameinaðir kraftarMeð reynslu af stofnun SHS í huga þá er það skoðun okkar og margra annarra, að sveitarfélögin og stjórnvöld sem eiga hlut að máli komi að þessu með sambærilegum hætti og gert var þegar SHS var stofnað og sameini krafta allra slökkviliða á áðurnefndum svæðum. Hugmyndir sem settar voru fram á árunum 2005-2006 um eitt öflugt slökkvilið höfuðborgarsvæðis-Suðurnesja-Selfoss-Akraness, eiga fyllilega rétt á sér nú á tímum samdráttar og sparnaðar. Fjárhagslegur og faglegur ávinningur af einu öflugu slökkviliði er ótvíræður. Fjárhagslegur ávinningur felst m.a. í samlegð á tækjum og mannafla. Faglegur ávinningur mun m.a. skila sér í nánari samhæfingu í þjálfun og öflugra og markvissara viðbragðs á öllu svæðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 20.06.2026 Halldór Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar