Umfjöllun: Víkingar með stórskotahríð í Kópavogi Kristinn Páll Teitsson á Kópavogsvelli skrifar 19. september 2011 16:00 Mynd/Valli
Víkingsmenn unnu öruggan 6-2 sigur á Breiðablik í kvöld á Kópavogsvelli þar sem Björgólfur Takefusa fór hamförum og skoraði þrennu. Eftir rólegar fyrstu mínútur skoraði Björgólfur fyrsta mark leiksins á 25. mínútu þegar hann nýtti sér varnarmistök Blika og skoraði í autt netið. Það tók Víkingsmenn aðeins fjórar mínútur að bæta við og var það fyrrverandi Blikinn Magnús Páll Gunnarsson einn óvaldaður á fjær sem potaði boltanum í netið. Blikar minnkuðu muninn nokkrum mínútum síðar þegar Árni Vilhjálmsson kláraði fallegt samspil milli hans og Tómas Óla Garðarssonar. Víkingsmenn náðu hinsvegar að bæta við rétt fyrir lok hálfleiks þegar Aron Elís Þrándarsson náði að leggja boltann í hornið eftir darraðadans í teig Blika. Blikar komu hinsvegar grimmir inn í seinni hálfleikinn og voru fljótir að skora þegar varamaðurinn Rafn Andri Haraldsson skallaði fyrirgjöf í netið og þá upphófst pressa hjá Blikum. Þeir náðu hinsvegar ekki að skapa sér góð færi og voru það Víkingsmenn sem skoruðu næsta mark. Þar var að verki Björgólfur Takefusa úr aukaspyrnu eftir klaufaleg mistök Sigmars í marki Breiðabliks sem orsakaði aukaspyrnuna. Björgólfur fullkomnaði svo þrennuna á 77. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti Arons Elís og skoraði einn í autt net Blika. Víkingsmenn voru þó ekki hættir, Aron Elís bætti við marki á 88. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti og innsiglaði öruggan 6-2 sigur Víkinga. Víkingsmenn voru stórkostlegir fram á við í þessum leik en það kemur of seint þar sem þeir féllu úr deildinni í síðustu umferð.Breiðablik – Víkingur Reykjavík 2-6 (1-3) Kópavogsvöllur. Áhorfendur: 523 Dómari: Garðar Örn Hinriksson 7Mörkin: 0-1 Björgólfur Takefusa (25.) 0-2 Magnús Páll Gunnarsson (29.) 1-2 Árni Vilhjálmsson (36.) 1-3 Aron Elís Þrándarson (45.) 2-3 Rafn Andri Haraldsson (49.) 2-4 Björgólfur Takefusa (65.) 2-5 Björgólfur Takefusa (77.) 2-6 Aron Elís Þrándarson (88.)Tölfræðin: Skot (á mark): 12–12 (4-10) Varin skot: Sigmar 4 – Magnús 3 Hornspyrnur: 5–2 Aukaspyrnur fengnar: 17–15 Rangstöður: 4–6
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira