Framtíðarsýn borgarstjórnar í þjónustu við fatlaða Björk Vilhelmsdóttir skrifar 20. janúar 2011 06:00 Borgarstjórn býður þeim borgarbúum sem búa við fötlun velkomna í þjónustu borgarinnar nú eftir að ríkið hefur fært félagslega þjónustu yfir til sveitarfélaga. Nú í vikunni samþykkti borgarstjórn framtíðarsýn í þjónustu við fatlaða þar sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er leiðarljós borgarinnar. Í því felst viðurkenning á sjálfstæðu lífi á eigin forsendum, jöfn tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, réttur til aðstoðar við að lifa innhaldsríku lífi og viðurkenning á fjölbreytileika mannlífsins og mannréttindum allra. Borgarstjórn lítur svo á að hér sé stigið stórt skref í mannréttindum. Fólk er ekki flokkað í fatlaða og ófatlaða íbúa sem er bent á sitthvort staðinn þegar þeir þurfa á persónulegri aðstoð að halda, hér í Reykjavík leita allir til þjónustumiðstöðvar í sínu hverfi. Við vonum svo sannarlega að notendur þjónustunnar finni einungis fyrir því með jákvæðum hætti að borgin beri nú ábyrgð. Við getum a.m.k. hætt þeirri þekktu aðferð að varpa málum einstaklinga á milli ríkis og borgar þar sem ábyrgðarskiptingin var aldrei skýr. Við berum ábyrgðina og viljum standa undir henni. Framtíðarsýnin er sett fram í fimm meginpunktum: Margbreytilegum þörfum borgarbúa verði mætt með sveigjanlegri og einstaklingsmiðaðri þjónustu sem veitt er af ábyrgð, virðingu og fagmennsku. Aðgengi að þjónustu verði tryggt í nærumhverfi borgarbúa. Jafnræði í þjónustu verði tryggt. Víðtækt samráð verði haft við notendur, hagsmunasamtök, starfsfólk og háskólasamfélagið um þróun þjónustunnar. Borgarbúar sem þurfa aðstoð í daglegu lífi hafi val um hvernig aðstoðinni við þá er háttað. Unnið verði að þróun notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Við í borgarstjórn fögnum því að vera skrefinu nær því að vera eitt samfélag fyrir alla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gegn regnboganum: Hugmyndafræði, umburðarlyndi og frjálslyndi Hjörvar Sigurðsson Skoðun Rýtingur frá RÚV Björn B. Björnsson Skoðun Þurfa börn kynfræðslu? Indíana Rós Ægisdóttir,Steinn Jóhannsson Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu Hermann Stefánsson Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir Skoðun Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Halldór 25.04.2026 Halldór Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin Skoðun Skoðun Skoðun Hvert fóru þessir tíu milljarðar? Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Frelsi kvenna er ekki vandamálið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íþróttamannvirki Hveragerðisbæjar Einar Alexander Haraldsson skrifar Skoðun Ráðabrugg Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri og ábyrg uppbygging innviða í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Njörður Sigurðsson,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Elskar Sjálfstæðisflokkurinn Hafnarfjörð með upplýsingaóreiðu? Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Tími undanbragða er liðinn – Mætir ráðherra með svör? Hjálmar Hallgrímsson skrifar Skoðun Rýtingur frá RÚV Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Dýrkeypt vanþekking og loftslagsblinda Ingu Sæland Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Þurfa börn kynfræðslu? Indíana Rós Ægisdóttir,Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Við verðum til í tengslum – og þar byrjar líka heilunin Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Meðvituð blekking um og upplýsingaóreiða um fullveldið Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Að tala í mótsögn við sjálfan sig eða sitja hjá? Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fjölbreytt ferðaþjónusta á víðsjárverðum tímum Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Finnbjörn A Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Skapandi greinar: lykill að nýsköpun Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Mataræði og hjartaheilsa Ellen Alma Tryggvadóttir skrifar Skoðun Hrein torg, fögur borg Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Gegn regnboganum: Hugmyndafræði, umburðarlyndi og frjálslyndi Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Fyrsta stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Rangárþing eystra í atvinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins Inger Erla Thomsen skrifar Skoðun Hverskonar borg viljum við? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Röskun hafstrauma er þjóðaröryggismál Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Öryggi og gæði í leikskólum – ábyrgð okkar Gunnþórunn Valsdóttir skrifar Skoðun Fagmennska og valddreifing í þágu íbúa Hveragerðis Lárus Jónsson skrifar Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason skrifar Skoðun Kynferðisofbeldi gegn börnum – við þurfum að gera betur Sigurþóra Bergsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Borgarstjórn býður þeim borgarbúum sem búa við fötlun velkomna í þjónustu borgarinnar nú eftir að ríkið hefur fært félagslega þjónustu yfir til sveitarfélaga. Nú í vikunni samþykkti borgarstjórn framtíðarsýn í þjónustu við fatlaða þar sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er leiðarljós borgarinnar. Í því felst viðurkenning á sjálfstæðu lífi á eigin forsendum, jöfn tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, réttur til aðstoðar við að lifa innhaldsríku lífi og viðurkenning á fjölbreytileika mannlífsins og mannréttindum allra. Borgarstjórn lítur svo á að hér sé stigið stórt skref í mannréttindum. Fólk er ekki flokkað í fatlaða og ófatlaða íbúa sem er bent á sitthvort staðinn þegar þeir þurfa á persónulegri aðstoð að halda, hér í Reykjavík leita allir til þjónustumiðstöðvar í sínu hverfi. Við vonum svo sannarlega að notendur þjónustunnar finni einungis fyrir því með jákvæðum hætti að borgin beri nú ábyrgð. Við getum a.m.k. hætt þeirri þekktu aðferð að varpa málum einstaklinga á milli ríkis og borgar þar sem ábyrgðarskiptingin var aldrei skýr. Við berum ábyrgðina og viljum standa undir henni. Framtíðarsýnin er sett fram í fimm meginpunktum: Margbreytilegum þörfum borgarbúa verði mætt með sveigjanlegri og einstaklingsmiðaðri þjónustu sem veitt er af ábyrgð, virðingu og fagmennsku. Aðgengi að þjónustu verði tryggt í nærumhverfi borgarbúa. Jafnræði í þjónustu verði tryggt. Víðtækt samráð verði haft við notendur, hagsmunasamtök, starfsfólk og háskólasamfélagið um þróun þjónustunnar. Borgarbúar sem þurfa aðstoð í daglegu lífi hafi val um hvernig aðstoðinni við þá er háttað. Unnið verði að þróun notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Við í borgarstjórn fögnum því að vera skrefinu nær því að vera eitt samfélag fyrir alla.
Skoðun Viðsnúningur í rekstri og ábyrg uppbygging innviða í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Njörður Sigurðsson,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Elskar Sjálfstæðisflokkurinn Hafnarfjörð með upplýsingaóreiðu? Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Við verðum til í tengslum – og þar byrjar líka heilunin Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Gegn regnboganum: Hugmyndafræði, umburðarlyndi og frjálslyndi Hjörvar Sigurðsson skrifar