Krónan hefur veikst um rúm 5% á árinu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 12. júlí 2011 13:30
Gengi krónunnar hefur veikst um rúm fimm prósent frá upphafi árs eftir að hafa styrkst um þrjú prósent að meðaltali árið 2010. Seðlabankinn stendur fyrir öðru gjaldeyrisútboði til að létta á krónueign erlendra aðila í dag. Gengi bandaríkjadollars stendur nú í tæpum hundrað og átján krónum og hefur ekki verið hærri síðan í febrúar á þessu ári . Gengi evru hefur hins vegar staðið í stað undanfarnar vikur í kringum 165 krónur en gengið hefur hækkað um rúmar tíu krónur frá ársbyrjun. Samkvæmt upplýsingum frá greiningardeild Arion Banka eru það aðallega hreyfingar á evru og dollar á erlendum mörkuðum sem að valda þessari gengishækkun nú. Hins vegar stendur ferðamannatímabilið nú sem hæst og kemur það greiningaraðilum á óvart að krónan hafi ekki styrkst undanfarnar vikur þar sem margir erlendir ferðamenn séu að kaupa krónur. Seðlabankinn býðst í dag til að kaupa krónur í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri. Þetta er annað gjaldeyrisútboð bankans í sumar og eru útboðin liður í losun gjaldeyrishafta og á að stuðla að því að fjárfestar geti selt krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Bankinn býðst til að kaupa fimmtán milljarða króna gegn greiðslum í evru sem er einungis rúm fjögur prósent af krónueign erlendra aðila en hún er metin á um 400 milljarða króna. Síðari hluti útboðsins fer fram í ágúst en þá mun bankinn bjóðast til að kaupa evrur gegn greiðslu í ríkisverðbréfum.
Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Atvinnulíf Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Sjá meira