Fjósverkin Sverrir Hermannsson skrifar 22. janúar 2011 06:00 Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 16. þ.m., ritar fyrrum ritstjóri blaðsins, Styrmir Gunnarsson, grein og minnir á að ekki dugi fjósamanni að moka flórinn til hálfs og berja sér svo á brjóst. Er hann þar að tala um fjósamennina, sem tóku að sér fjósverkin eftir Hrun. Ritari þessa greinarkorns kom þar á bæ fyrir fjörutíu árum að flórinn í fjósinu hafði verið mokaður til hálfs og mykjunni mokað yfir í hinn endann. Þar stóð kálfur í klyftir í mykju. Hvað ætli mykjan nái hátt á Halldóri Ásgrímssyni í ómokaðasta flór Hrunverja? Er Finnur Ingólfsson kannski alveg á kafi? Ráðslag Landsbankamanna er nú mjög í umræðunni, sem vonlegt er. Var ekki í fréttum nýlega, að eignarlausu félagi á Höfn í Hornafirði, Mónu að nafni, í eigu H. Ásgrímssonar hefði Landsbankinn lánað 5 - fimm - milljarða króna, kr. 5.000.000.000.00 - án veða og væri bankinn þessvegna búinn að afskrifa tæpa 3 - þrjá - milljarða? Hvað er Landsbankinn búinn að afskrifa marga milljarða vegna Stöðvar 2, sem neitað hafði verið um viðskipti í bankanum áður en við yfirstjórn þar tóku Hrunverjarnir Finnur, Helgi horski og Kjartan strjálbýlingur? Hvar voru fjármunir Samvinnutrygginga ávaxtaðir? Í Landsbankanum að sjálfsögðu. Hverjir tóku þá út og ráðstöfuðu 30 milljörðum til kaupa á hlutabréfum í stórfjósunum, þar sem flórarnir standa enn fleytifullir? Má fá að líta á umboðin, sem úttektarmenn framvísuðu í bankanum? Er það rétt, að þeir sem fengu VÍS-hlut Landsbankans keyptan fyrir kr. 6,8 milljarða hafi selt hann innan þriggja ára fyrir kr. 31,5 milljarða? Væri kannski rétt að „Sérstakur saksóknari" spyrði Finn Ingólfsson að því? Formaður Einkavæðingarnefndar, Jón Sveinsson, framsóknarmaður, fékk, ásamt félögum sínum, Íslenska aðalverktaka keypta fyrir kr. 3,2 milljarða, að fyrirmælum þáverandi utanríkisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, og áttu þeir félagar þó ekki hæsta tilboð í fyrirtækið. Fyrir rúmum þremur árum birtist frétt í Morgunblaðinu um sölu lóða í Blikastaðalandi, en þær höfðu fylgt með í sölu ÍAV. Blaðið kvaðst ekki hafa fengið upplýsingar um söluverð lóðanna, en það væri talið 16-18 milljarðar króna. Ætti nú ekki „Sérstakur saksóknari" að efna sér í myndarlega fjósreku eftir að hann hefur misst norsk-frönsku jarðýtuna út í veður og vind? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar