Skoðun

Aukin skattlagning leiðir til stöðnunar

Sveinn Hjörtur Hjartarson skrifar
Auðlindagjald (veiðigjald) sem fyrirtæki í sjávarútveginum greiða til ríkisins fiskveiðiárið 2010-2011 nemur 2.700 til 2.900 milljónum króna. Gjaldið er reiknað sem 9,5% af vergri framlegð greinarinnar (EBITDA), þ.e. framlagi rekstrar fyrir afskriftir og fjármagnskostnað. Þessi sérstaki skattur sem sjávarútvegurinn greiðir nemur 18% í hlutfalli af hagnaði greinarinnar að meðaltali síðastliðin tíu ár miðað við árgreiðsluaðferð Hagstofu Íslands.

Auðvitað væri mun skynsamlegra að nýta þetta fjármagn til uppbyggingar í atvinnugreininni og fjárfesta í nýjum skipum og verkefnum. Um það er þó ekki að ræða. Þessi skattur var settur á í nafni sáttar í samfélaginu.

Bolli Héðinsson hagfræðingur spyr hér nýverið í blaðinu hvort LÍÚ vilji ekki sátt og lætur eins og hann viti ekki um framangreindar skattgreiðslur. Það er ekki hægt að reka atvinnustarfsemi nema um hana ríki sátt. Sáttin þarf að vera við starfsmenn, viðskiptavini, ríkisvaldið og alla þá er hagsmuna eiga að gæta. Sátt getur hins vegar aldrei verið á forsendum þeirra sem gera ítrustu kröfur án tillits til sanngirni.

Þórólfur Matthíasson prófessor bendir á þau augljósu sannindi í pistli sínum í Fréttablaðinu þann 15. febrúar sl. að tekjur útgerða muni skerðast við álagningu auðlindaskatts. Það kemur hins vegar undirrituðum á óvart að hann segist ekki þekkja samspil gengis og afkomu í sjávarútvegi.

Það liggur í augum uppi að ofurskattlagning fiskveiða kallar á lækkun gengis krónunnar svo sjávarútvegurinn fái risið undir henni. Enn frekari lækkun krónunnar hefur í för með sér minni kaupmátt almennings eins og fólk hefur upplifað undanfarin misseri.

Ríkissjóður fær fleiri skattkrónur við ofurskattlagninguna en eftir situr févana sjávarútvegur eins og Þórólfur staðfestir. Lífskjör alls almennings versna líka við lægra gengi, þótt Þórólfi kjósi að sniðganga þá staðreynd.

Samfélagið mun tapa í heild. Óhófleg skattlagning leiðir af sér stöðnun í atvinnuppbyggingu. Það leiðir svo til samdráttar í skatttekjum ríkissjóðs til lengri tíma. Það er skammgóður vermir.

 




Skoðun

Sjá meira


×