Veiking krónunnar áhyggjuefni - skilar sér með hækkandi vöruverði Hafsteinn Hauksson. skrifar 15. júlí 2011 18:55
Gengi krónunnar hefur veikst um sex prósent frá áramótum gagnvart helstu viðskiptamyntum landsins eftir að hafa styrkst allt síðasta ár. Hagfræðingur segir að þróunin sé áhyggjuefni. Jón Bjarki Bentsson, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir erfitt að segja til um orsök þessa. Hluti hennar sé að afgangur af vöruskiptum fer minnkandi þar sem innflutningur er að aukast, en það setur þrýsting á krónuna. Hann hefur áhyggjur af sigi krónunnar, meðal annars vegna ákvæða kjarasamninga um gengisþróunina. "Það blæs nú ekki byrlega," segir Jón Bjarki. "Innflæði vegna þjónustuviðskipta ætti að vera með mesta móti núna, vegna þess að ferðamannatíminn er í hámarki. Ef aðstæður breytast ekki að öðru leyti með haustinu, þegar þetta flæði fer að sjatna, þá gæti krónan átt nokkuð erfitt uppdráttar." Veiking krónunnar hefur áhrif á almenning í gegnum hærra verðlag, en það kom meðal annars fram í nýlegri rannsóknarritgerð seðlabankans. "Ritgerðin sýndi fram á að áhrifin eru nokkuð sterk, og ósamhverf. Þegar gengið veikist, þá skilar það sér hratt út í verðlag og mjög sterkt. Það var sýnt fram á það í ritgerðinni að jafnvel þeir sem ákvarða verð á vörum og þjónustu, og ekki eru undir beinum áhrifum af genginu, elta hina í meira mæli en í öðrum löndum. Áhrif af gengissigi verða meiri og þrálátari hér á landi en víðast hvar annars staðar. Á móti virðist áhuginn á að láta verðlagið njóta þess þegar krónan styrkist vera öllu minni," segir Jón Bjarki að lokum.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Sjá meira