Stelpurnar hafa sýnt okkur áhuga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. ágúst 2011 08:00 Jesper fagnaði glæsimarki sínu gegn Þór ásamt Silfurskeiðinni, stuðningsmannasveit Stjörnunnar. Mynd/Valli
Jesper Holdt Jensen, danski miðjumaðurinn hjá Stjörnunni, fór á kostum í 5-1 sigri á Þór á sunnudaginn. Jesper skoraði eitt, lagði upp tvö og er leikmaður 14. umferðar að mati Fréttablaðsins. „Mér fannst leikurinn einn af okkar betri í sumar. Við vildum halda áfram að spila fótbolta þrátt fyrir að vera manni færri allan síðari hálfleikinn,“ sagði Daninn 23 ára sem hefur átt frábært tímabil með Garðbæingum. Jesper fór meiddur af velli í síðari hálfleik og er óttast að meiðslin séu alvarleg. „Ég teygði of mikið á hnénu og það snerist upp á það. Það er svo bólgið að það er ekki hægt að skoða það fyrr en bólgan er farin. Þangað til hvíli ég bara fótinn,“ sagði Jesper en þetta er í fyrsta sinn sem hann verður fyrir meiðslum á hné. Jesper segir töluverðan mun á fótboltanum á Íslandi og í Danmörku. Íslenskir knattspyrnumenn séu óþolinmóðari en kollegar þeirra í Danmörku. „Í Danmörku er reynt að spila meira og menn eru þolinmóðari með boltann. Hérna er boltanum kýlt strax fram með löngum sendingum,“ segir Jesper. Hann segir Stjörnuna yfirleitt spila betur gegn andstæðingum sem vilja spila góðan fótbolta. Skemmta sér mest í sófanumJesper býr með vini sínum, landa og liðsfélaga, Nikolaj Hagelskjær Pedersen. Félagarnir eru báðir á láni hjá Stjörnunni út tímabilið frá danska félaginu Vejle en auk þess er Daninn Henryk Bødker markmannsþjálfari. Danska þríeykið þykir afar hresst samkvæmt einum íslenskum liðsfélaga þeirra. „Við pössum vel saman og njótum félagsskapar hvers annars. Við smullum saman frá fyrsta degi. Við Nikolaj þekktumst og Hendryk er frábær náungi,“ segir Jesper. Töluverður aldursmunur er á hinum ungu Jesper og Nikolaj og Hendryk sem er þrítugur en Jesper segir Hendryk vera ungan í anda. Jesper hefur nægan frítíma meðfram fótboltanum sem nýtist ekki alveg sem skyldi. „Okkur Nikolaj langaði mikið að fara út úr bænum og skoða landslagið. En í rauninni skemmtum við okkur mest í sófanum, slöppum af. Einstaka sinnum förum við út og njótum þess sem Ísland hefur upp á að bjóða.“ Jesper segir þá félagana hafa byrjað að spila golf en hann sé orðinn þreyttur á því að taka engum framförum. „Mér gengur ekkert að bæta mig þannig að ég vil ekki spila. Nikolaj gengur betur og langar að spila meira en ég vil það ekki.“ Sjaldséð mörk hjá JesperJesper er afar ánægður með liðsfélaga sína í Stjörnunni. „Liðsfélagarnir eru virkilega fínir. Ef við viljum gera eitthvað skemmtilegt eru þeir klárir og hjálpa okkur. Það er gott andrúmsloft og allir reyna að skemmta sér saman.“ Jesper skoraði glæsilegt mark í sigrinum á Þór og skoraði fallegt mark gegn KR fyrr í sumar. „Ég skora ekki oft. Mörkin tvö í sumar með Stjörnunni eru einu mörkin sem ég hef skorað síðustu tvö ár. Vonandi held ég áfram að skora,“ segir Jesper. Bæði mörkin komu með langskotum og með ólíkindum að skotviss leikmaður á borð við Jesper skori ekki oftar. Jesper er ekki tilbúinn til að lýsa því yfir að íslenskar stelpur séu fallegri en þær dönsku þótt fallegar séu. „Íslensku stelpurnar eru mjög fallegar og indælar. Það er þægilegt að tala við þær,“ segir Jesper sem viðurkennir að kvenfólkið hafi sýnt Dönunum áhuga. „Já, þær hafa sýnt okkur áhuga. Við höfum reyndar ekki farið út í töluverðan tíma en þær gerðu það í upphafi. Við fórum út með kærustum liðsfélaganna og vinkonum þeirra. Það var mjög skemmtilegt.“ Jesper heldur aftur til Vejle að tímabilinu loknu. Markmið hans er að stimpla sig inn í lið á Norðurlöndunum og jafnvel komast í Championship-deildina á Englandi. Hann reiknar ekki með því að spila með Stjörnunni að ári. „Það þarf margt að ganga upp til þess að það gerist. Við verðum að bíða og sjá.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira