Talandi íkornar slá í gegn 15. desember 2011 10:00 Íkornarnir þrír Hinir talandi íkornar hafa slegið í gegn og nú rekur þriðju myndina um þessa grallara á fjörur landsins.
Þriðja myndin um Alvin og íkornana verður frumsýnd um helgina. Hinar myndirnar tvær hafa slegið í gegn og að þessu sinni eru íkornarnir óstýrilátu og eigandi þeirra á ferðalagi á skemmtiferðaskipi. Að sjálfsögðu eru íkornarnir duglegir að koma sér klandur og áður en þeir vita af eru þeir fastir á eyðieyju. Þeir reyndar komast fljótt á snoðir um að eyjan er ekki alveg jafn mann- eða íkornalaus eins og þeir höfðu gert ráð fyrir. Það er Jason Lee sem leikur Dave, hinn ólánsama eiganda íkornanna þriggja, en meðal þeirra sem tala inn á myndina eru Justin Long og Christina Applegate. Eins og kemur fram hér að framan verður kvikmyndin Mission Impossible: Ghost Protocol frumsýnd um helgina. Myndin skartar Tom Cruise í hlutverki Ethans Hawke en meðal annarra leikara má nefna Simon Pegg og Jeremy Renner úr The Hurt Locker og The Town og Michael Nyqvist sem margir kannast við úr sænska Millenium-þríleiknum. Þrátt fyrir að mikil leynd hafi hvílt yfir söguþræðinum segir myndin frá því þegar sérdeildinni er lokað eftir að hún er grunuð um sprengjutilræði í Moskvu. Hunt og félagar verða því að leita allra ráða til að hreinsa mannorð sitt áður en það er um seinan.- fgg
Lífið Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira