Umfjöllun: Grétar skallaði KR aftur upp á toppinn Ari Erlingsson skrifar 29. maí 2011 18:00 Grétar Sigfinnur Sigurðarson sést hér nýbúinn að skora sigurmark KR í kvöld. Mynd/Valli
Grétar Sigfinnur Sigurðarson tryggði KR 2-1 sigur á Fram á Laugardalsvellinum í 6. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld en KR komst aftur á toppinn með þessum sigri. Eyjamenn voru búnir að vera í rúma þrjá klukkutíma eftir sigur á Víkingi út í Eyjum. Grétar skoraði sigurmarkið með skalla eftir hornspyrnu Bjarna Guðjónssonar á 79. mínútu leiksins. Kjartan Henry Finnbogason hafði komið KR í 1-0 á 21. mínútu en Arnar Gunnlaugsson jafnaði úr vítaspyrnu fjórum mínútum síðar. Reykjavíkurliðin Fram og KR mættust í 6. umferð Pepsídeildar karla í gærkvöldi. Liðin höfðu aðhafst ólíkt að í upphafi móts. KR-ingar höfðu innbyrt 11 stig en Framarar sátu á botninum með einungis 1 stig. Ólukka Framara hélt áfram í Laugardalnum því það voru KR-ingar sem fóru heim með öll 3 stigin sem í boði voru. KR-ingar eru því komnir í efsta sæti deildarinnar á meðan þeir bláklæddu úr Safamýrinni sitja enn sem fastast við botninn. Fyrstu 45 mínútur leiksins var jafnræði með liðunum og ekki var að sjá að heil 11 stig skildi liðin að. Þó voru það gestirnir úr Vesturbænum sem náðu forystunni á 21 mínútu. Kjartan Henry Finnbogason skoraði þá með laglegu skoti hægra megin við vítateigsjaðarinn. Það tók þó Framara ekki nema 4 mínútur að jafna leikinn og var þar að verki Arnar Gunnlaugsson. Arnar skoraði út víti sem hafði verið dæmt á Guðmund Reyni Gunnarsson sem handlék boltann að mati Gylfa Sigurðssonar aðstoðardómara. Umdeildur dómur. Seinni hálfleikur hófst líkt og sá fyrri. Jafnræði með liðunum og bæði lið gerðu sig líkleg til þess að skora. Þegar leið á seinni hálfleik var sem gestirnir næðu tökum á leiknum og eftir 79 mínútna leik lét vörn Fram loks undan. Grétar Sigfinnur Sigurðarsson skallaði þá boltann í netið eftir hornspyrnu Bjarna Guðjónssonar frá vinstri. Framarar náðu ekki að svara fyrir sig líkt og í fyrri hálfleik og niðurstaðan því 2-1 sigur KR-inga. Framarar eru ef til vill súrir með frammistöðu liðsins og þá sérstaklega niðurstöðu leiksins. Þeir áttu í fullu tré við KR-inga lengi framan af en af einhverjum ástæðum þá misstu þeir tökin á leiknum um miðjan seinni hálfleik og það nýttu KR-ingar sér svo sannarlega. KR-ingar geta verið ánægðir með leik liðsins. Vörnin þeirra var þræltraust með Grétar Sigfinn sem besta mann. Fram á við náðu þeir að skapa sér þó nokkuð af færum en Guðjón Baldvinsson sem spilaði sem fremsti maður var þó ekki alveg nægjanlega vel innstilltur í kvöld og fór illa með nokkur færi. Rúnar þjálfari er eflaust kátur með seiglu og þolinmæði liðsins og má vel tala um seiglusigur hjá þeim svarthvítu í kvöld. Fram – KR 1-20-1 Kjartan Henry Finnbogason (21.) 1-1 Arnar Gunnlaugsson, víti (25.) 1-2 Grétar Sigfinnur Sigurðarson (79.) Laugardalsvöllur. Áhorfendur: 1613 Dómari: Gunnar Jarl Jónsson (4)Tölfræðin: Skot (á mark): 9–10 (4-4) Varin skot: Ögmundur 2 – Hannes 3 Hornspyrnur: 7–7 Aukaspyrnur fengnar: 14-11 Rangstöður: 0–0Fram 4-3-3: Ögmundur Kristinsson 6 Alan Lowing 5 Kristján Hauksson 6 Jón Guðni Fjóluson 4 Samuel Lee Tillen 6 Halldór Hermann Jónsson 5 Daði Guðmundsson - (17., Guðmundur Magnússon 6) Jón Gunnar Eysteinsson 6 Kristján Ingi Halldórsson 7 Arnar Gunnlaugsson 6 (76., Hjálmar Þórarinsson -) Almarr Ormarsson 4KR (4-3-3) Hannes Þór Halldórsson 7 Magnús Már Lúðvíksson 7 Skúli Jón Friðgeirsson 7 Grétar Sigfinnur Sigurðarson 8 Guðmundur Reynir Gunnarsson 8 Baldur Sigurðsson 6 Bjarni Eggerts Guðjónsson 7 Viktor Bjarki Arnarsson 4 (67., Ásgeir Örn Ólafsson 5) Óskar Örn Hauksson 7 Kjartan Henry Finnbogason 6 Guðjón Baldvinsson 3 (67., Gunnar Örn Jónsson 6)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Fleiri fréttir Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Sjá meira