Heimir: Við vorum að skapa okkur fullt af dauðafærum Valur Smári Heimisson skrifar 29. maí 2011 20:00 Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV. Mynd/Vilhelm
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var ánægður með leik sinna manna eftir sannfærandi 2-0 sigur á Víkingum í Eyjum í dag. Eyjamenn voru mikið meira með boltann og Heimir talaði um að þetta hafi verið nánast fullkominn leikur hjá sínum mönnum. „Það sem við erum að bæta frá því síðast er að við erum að skapa okkur fullt af færum, dauðafærum. Við náðum reyndar ekki að klára þau öll en við fengum fullt af færum. Við réðum leiknum allan tímann og Víkingarnir fengu aldrei neinn tíma," sagði Heimir. Eyjamenn settu hápressu á Víkingsliðið og voru yfirleitt fljótir að vinna boltann af þeim. Með því héldu þeir þeim svolítið út úr leiknum. „Ef þeir unnu boltann þá unnum við hann fljótt aftur og það var ég mjög ánægður með. Ég var ánægður með þá pressu sem við settum á þá," sagði Heimir. Það hefur verið skrifað mikið um að Eyjamenn séu að leita sér af sóknarmanni og að það vanti nauðsynlega annan framherja í þetta lið. Það var ekki að sjá á liðinu í dag. „Það er kannski kosturinn við að vera með lítinn hóp yfir vetrartímann að menn eru að spila margar stöður á völlum og þessir strákar hafa þurft að spila ýmsar stöður á vellinum," sagði Heimi. „Ég er heilt yfir mjög sáttur við leikinn. Þetta var mikill liðsheildarsigur og það var enginn sem stóð áberandi mikið uppúr í leiknum. Það voru í raun allir góðir og enginn lélegur," sagði Heimir. Tryggvi Guðmundsson og Ian Jeffs voru að ná einstaklega vel saman í leiknum en þeir voru að spila vel á milli sín og skapa sér hættuleg færi. „Hæfileikarnir hjá Ian Jeffs nýttust mjög vel í þessum leik, hann er mjög klókur að finna svæði til að hlaupa í, hlaupalínurnar góðar og þetta var ekta leikur fyrir hann.” sagði Heimir.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira