Íslenski boltinn

Ólafur: Flottur leikur

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis.
Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis. Mynd/Valli
Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis var ákaflega ánægður og stoltur af sínu liðið eftir glæsilegan 3-1 sigur á Víkingum í kvöld á Víkingsvellinum.

„Þetta var flottur leikur hjá okkur, meira og minna frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Við byrjum seinni hálfleikinn alveg vel en gerum ein mistök og þeir refsa um leið en svo fáum við ekkert smá mark frá Baldri Bett sem klíndi honum í skeytin. Það var flott og þar braut hann þá,“ sagði Ólafur en Baldur Bett lék í stöðu framliggjandi miðjumanns og þakkaði það með þessu glæsimarki.

„Við færðum hann í þessa stöðu í síðasta leik og það gekk vel og ég sá ekki ástæðu til að breyta því. Ég get ekki betur séð en það sé allt í góðu.“

Fylkir hefur náð í 13 stig í sjö fyrstu umferðunum sem hlýtur að vera nálægt markmiðum þeirra en það tók Ólafur undir. „Við erum nálægt okkar markmiðum. Við höfum gefið aðeins of auðveld stig frá okkur en við getum ekki annað en verið sáttir.

Við erum innan þeirra marka sem við settum okkur sjálfir og það er ólíkt betra að fara inn í þetta þriggja vikna frí með þennan sigur í farteskinu heldur en tap. Það hefði verið svo leiðinlegt fyrir strákana að sitja með það á bakinu,“ sagði Ólafur að lokum. 


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Fylkir áfram á góðri siglingu

Fylkir gerði góða ferð á Víkingsvöll í kvöld þar sem liðið lagði heimamenn í Víking sannfærandi 3-1. Fylkir var betra liðið nær allan leikinn og þegar Víkingar komu sér inn í hann með jöfnunarmarki svöruðu gestirnir jafnharðan í tvígang og gerðu út um leikinn.

Andri: Mætum af krafti eftir frí

Andri Marteinsson þjálfari Víkings var ekki í neinum vafa um það hver vendipunkturinn í tapinu gegn Fylki í kvöld var. Það var glæsimark Baldurs Bett aðeins mínútu eftir að Víkingar höfðu jafnað metin í upphafi seinni hálfleiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×