Ein fyrsta blaðaauglýsingin hérlendis er snerti fermingargjafir er frá árinu 1897 og birtist í Þjóðólfi. Guðjón Sigurðsson auglýsir þar vasaúr, nýjar birgðir af „beztu Anker- og Cylinder-úrum". Guðjón stofnaði verslun sína árið 1894, upphaflega á Eyrarbakka og síðar í Reykjavík. Vasaúr voru lengi vel með vinsælustu fermingargjöfum drengja.
Ekki var gefið að börn fengju sérstakar fermingargjafir á fyrri hluta síðustu aldar. Flestir fengu þó sálmabók, sem er líklega með vinsælustu fermingargjöfum fyrri tíma.

Með veglegri fyrri tíma fermingargjöfum, sem sérstaklega voru ætlaðar stúlkum, voru vandaðir íslenskir smíðisgripir úr gulli og silfri sem voru þá gjarnan notaðir á fermingardaginn við íslenskan búning. Má þar nefna steypt belti, upphlutsbelti, brjóstnælur og skúfhólka úr silfri, gulli eða gullhúðaða.

Þannig auglýsti verslunin Gamla kompaníið við Hringbraut „tilvaldar fermingargjafir fyrir stúlkur" sem voru kommóður í mörgum litum og litlir fataskápar. Kommóður og skatthol með spegli urðu reyndar vinsæl næstu áratugi þótt útlit og efniviður hafi verið misjafn eftir því hvaða tíska ríkti hverju sinni.

Þá var algengt um þær mundir að í stað einstakra húsgagna; rúms, skriborðs og svo framvegis, fengju fermingarbörnin yfirhalningu á herbergi sínu, þar sem öllum húsgögnum var skipt út og til að gera sérlega vel við fermingarbarnið var settur inn hljómtækjaskápur í rósaviðarlíki með hálfsjálfvirkum plötuspilara, gettóblaster eða jafnvel agnarlitlu sjónvarpi. - jma
x