Sampo fléttan Friðrik Indriðason skrifar 5. janúar 2011 15:22 Nokkrar einfaldar staðreyndir í kringum gríðarlegar lánveitingar Kaupþings til úzbeska glæpamannsins Alisher Usmanov korteri fyrir hrun bankans benda til þess að völva vikunnar hafi rétt fyrir sér í einu. Á þessu ári munum við upplifa risahneyksli. Guðmundur Ólafsson hagfræðingur fór mikinn í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og sagði að Usmanov væri handrukkari fyrir Gazprom, stærsta orkufyrirtæki heimsins. Sem slikur sæi hann um „viðkvæmar" fjárfestingar Gazprom víða um heim. Guðmundur hefur rétt fyrir sér í því að engir bankar sem annt er um orðspor sitt eiga viðskipti við Usmanov nema tilneyddir. Að lánanefnd Kaupþings sé einu sinni að ræða að lána þessum manni 270 milljarða kr., ofan á þá 40 milljarða kr. sem Úzbekinn hafði þegar haft af bönkunum, er efni í skáldsögu en ekki raunveruleiki. Morgunblaðið segir að þetta lán til Usmanov hafi verið gert til að bjarga Existu úr einhverjum kröggum með 20% hlut sinn í finnska tryggingarrisanum Sampo. Þetta hafi bara verið ein af þessum hefðbundu froðufléttum bankans sem Íslendingar hafa fengið að kynnast náið frá hruninu. Þriðjudaginn 7. október 2008, segir á vefsíðunni business.dk að allra augu norræna tryggingageirans séu nú á finnska risanum Sampo sem er lentur í stórútsölu þar sem íslenski stórhluthafinn Exista sé að hella hlutum sínum á markaðinn þennan dag. Hlutirnir hafa fallið um 11% í verði. Kvöldið eftir að þessi frétt birtist féll Kaupþing. Hafi Kaupþing lánað Usmanov til kaupa í Sampo á þessum tíma er ekki bara um að ræða að „handrukkarinn" hafi fengið skuldina greidda heldur einnig myndarlegan gengishagnað fram að þessu. Þegar Exista hellti sínum hlutabréfum á markaðinn fór gengi Sampo niður í 12 evrur á hlut. Það stendur í rúmum 20 evrum í dag og náði raunar einnig þeim toppi á miðju síðasta ári. Sum sé hafi Usimanov fengið 270 milljarða kr. til að kaupa hluti í Sampo 2008 væru þeir orðnir hátt í 500 milljarða kr. virði í dag. Raunar passa tölurnar nokkuð vel því vitað er að Exista tapaði 217 milljörðum á Sampo hlutum sínum, tap sem að hluta má rekja til hreint óskiljanlegra aðferða við að selja hlutinn. Nú vakna nokkrar spurningar. Afhverju þurftu Kaupþing og Exista að fá dæmdan úzbeskan glæpamann (tekið skal fram að hæstiréttur Úzbekistan hefur náðað Usmanov af glæpum sínum en enginn virðist taka mikið mark á þeirri náðun nema hann sjálfur) til þess að vera í forsvari fyrir froðunni? Þeir hefðu auðveldlega getað fengið einhvern íslenskan eins og t.d. Jakob Valgeir fyrir vestan. Afhverju stóð stjórn Exista að sölunni á Sampo eins og verstu aularnir á markaðinum? Voru þeir að reyna að tapa sem mestu? Eða var einhver annar aðili með í spilinu sem tók skortstöðu í Sampo bréfunum af því hann vissi hvað var í vændum? Sá hefði fengið 11% ofan á fjárfestingu sína á einum degi. Kannski hefur úzbekinn leikið báðum meginn við borðið? Stóra spurningin sem vaknar er hinsvegar afhverju rannsóknarnefnd Alþingis hafði þessar upplýsingar ekki haldbærar við sína rannsókn? Það er kannski ekki að furða að hinn litríki stjórnarformaður og fyrrum forstjóri Sampo, Björn Whalroos, hafi kallað íslenska bankamenn brjálæðinga í ræðu sem hann hélt í Stokkhólmi í fyrra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen Skoðun ,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að vera rétt tengdur eða bara „íbúi“? Guðrún M. Njálsdóttir skrifar Skoðun Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Bærinn okkar allra - Af hverju skiptir hann máli? Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngur sem virka fyrir Hafnarfjörð Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Að kaupa burt vandann Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun ,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gervigreind og fullveldi Linda Heimisdóttir,Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson skrifar Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson skrifar Skoðun Bestum borgina með fólkið í forgrunni Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar Skoðun Fögnum úrbótum án afslátta Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Áhrifum fylgir ábyrgð Ása Valdís Árnadóttir skrifar Skoðun Að kljúfa þjóð í herðar niður Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Holland í sókn en stjórnmálin hikandi Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Nokkrar einfaldar staðreyndir í kringum gríðarlegar lánveitingar Kaupþings til úzbeska glæpamannsins Alisher Usmanov korteri fyrir hrun bankans benda til þess að völva vikunnar hafi rétt fyrir sér í einu. Á þessu ári munum við upplifa risahneyksli. Guðmundur Ólafsson hagfræðingur fór mikinn í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og sagði að Usmanov væri handrukkari fyrir Gazprom, stærsta orkufyrirtæki heimsins. Sem slikur sæi hann um „viðkvæmar" fjárfestingar Gazprom víða um heim. Guðmundur hefur rétt fyrir sér í því að engir bankar sem annt er um orðspor sitt eiga viðskipti við Usmanov nema tilneyddir. Að lánanefnd Kaupþings sé einu sinni að ræða að lána þessum manni 270 milljarða kr., ofan á þá 40 milljarða kr. sem Úzbekinn hafði þegar haft af bönkunum, er efni í skáldsögu en ekki raunveruleiki. Morgunblaðið segir að þetta lán til Usmanov hafi verið gert til að bjarga Existu úr einhverjum kröggum með 20% hlut sinn í finnska tryggingarrisanum Sampo. Þetta hafi bara verið ein af þessum hefðbundu froðufléttum bankans sem Íslendingar hafa fengið að kynnast náið frá hruninu. Þriðjudaginn 7. október 2008, segir á vefsíðunni business.dk að allra augu norræna tryggingageirans séu nú á finnska risanum Sampo sem er lentur í stórútsölu þar sem íslenski stórhluthafinn Exista sé að hella hlutum sínum á markaðinn þennan dag. Hlutirnir hafa fallið um 11% í verði. Kvöldið eftir að þessi frétt birtist féll Kaupþing. Hafi Kaupþing lánað Usmanov til kaupa í Sampo á þessum tíma er ekki bara um að ræða að „handrukkarinn" hafi fengið skuldina greidda heldur einnig myndarlegan gengishagnað fram að þessu. Þegar Exista hellti sínum hlutabréfum á markaðinn fór gengi Sampo niður í 12 evrur á hlut. Það stendur í rúmum 20 evrum í dag og náði raunar einnig þeim toppi á miðju síðasta ári. Sum sé hafi Usimanov fengið 270 milljarða kr. til að kaupa hluti í Sampo 2008 væru þeir orðnir hátt í 500 milljarða kr. virði í dag. Raunar passa tölurnar nokkuð vel því vitað er að Exista tapaði 217 milljörðum á Sampo hlutum sínum, tap sem að hluta má rekja til hreint óskiljanlegra aðferða við að selja hlutinn. Nú vakna nokkrar spurningar. Afhverju þurftu Kaupþing og Exista að fá dæmdan úzbeskan glæpamann (tekið skal fram að hæstiréttur Úzbekistan hefur náðað Usmanov af glæpum sínum en enginn virðist taka mikið mark á þeirri náðun nema hann sjálfur) til þess að vera í forsvari fyrir froðunni? Þeir hefðu auðveldlega getað fengið einhvern íslenskan eins og t.d. Jakob Valgeir fyrir vestan. Afhverju stóð stjórn Exista að sölunni á Sampo eins og verstu aularnir á markaðinum? Voru þeir að reyna að tapa sem mestu? Eða var einhver annar aðili með í spilinu sem tók skortstöðu í Sampo bréfunum af því hann vissi hvað var í vændum? Sá hefði fengið 11% ofan á fjárfestingu sína á einum degi. Kannski hefur úzbekinn leikið báðum meginn við borðið? Stóra spurningin sem vaknar er hinsvegar afhverju rannsóknarnefnd Alþingis hafði þessar upplýsingar ekki haldbærar við sína rannsókn? Það er kannski ekki að furða að hinn litríki stjórnarformaður og fyrrum forstjóri Sampo, Björn Whalroos, hafi kallað íslenska bankamenn brjálæðinga í ræðu sem hann hélt í Stokkhólmi í fyrra.
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar
Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar
Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar
Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun