Villuljós í orkumálum Gunnlaugur H. Jónsson skrifar 5. janúar 2011 06:00 Nýlega hafa borist fréttir af því að Landsvirkjun og Carbon Recycling International (CRI) hafi undirritað viljayfirlýsingu um að meta hagkvæmni þess að reisa metanólverksmiðju í nágrenni jarðvarmavirkjunar Landsvirkjunar við Kröflu á Norðausturlandi. Samkvæmt heimasíðu Landsvirkjunar myndi verksmiðjan hreinsa koltvísýring úr útblæstri Kröflustöðvar og breyta honum í metanól með hjálp raforku og vatns. Hugsanleg orkuþörf verksmiðjunnar er 50-60 MW og myndi hún þá framleiða 50-100 milljónir lítra af metanóli á ári með hliðsjón af þeirri framleiðsluaðferð sem yrði notuð. Miðað við miðgildi þessara talna á að nýta 55 MW sem samsvarar um 440 GWh af raforku til þess að framleiða 75 milljónir lítra af metanóli. Það þarf því um 6 KWh af raforku til framleiðslu á hverjum lítra af metanóli. Orkuinnihald metanóls er 15,8 MJ á lítra eða með öðrum orðum eru 4,4 KWh í hverjum lítra. Spyrja má sig hverjum komi í hug að fjárfesta fyrir tugi milljarða til þess að breyta raforku í efnaorku með nýtni sem er aðeins 75% á sama tíma og 80% af raforku heimsins eru framleidd með því að brenna efnaorku, einkum jarðgas og kol. Til þess að loka hringnum má hugsa sér að flytja metanólið út þar sem það yrði brennt í raforkuveri og út kæmi um 1,5 KWh af raforku. Þannig hringavitleysa nýtist til þess að flytja út raforku með 25% nýtni og hefur þó ekki verið tekið tillit til orkunnar sem þarf til þess að flytja metanólið út. Sæstrengur væri nærtækari en metanól til útflutnings á raforku. Spyrja má sig hvers vegna valið sé að framleiða metanól. Metanól, öðru nafni tréspíri, er eitrað alkóhól með orkuinnihald sem er aðeins um 45% af orku bensíns miðað við vikt. Fyrir utan það að vera eitrað þá er metanól mjög tærandi fyrir ál og því ekki vænlegt að brenna því í venjulegum bílvélum sem flestar eru úr áli. Metanól er einkum framleitt úr jarðgasi og stærstu notin eru í efnaiðnaði. Það er einn hlekkur í framleiðslukeðju efnaiðnaðarins sem nýtir sér jarðgas og jarðolíu til framleiðslu á þúsundum efnavara, allt frá plasti til lyfja. Verð á metanóli, fob Rotterdam, var að meðaltali € 254 á hvert tonn á þessu ári. Að teknu tilliti til eðlisþyngdar metanóls er verðið ISK 31 á hvern lítra. Söluverðmætið er því ISK 5,20 á hverja KWh raforku. Frá þeirri upphæð þarf að draga flutningskostnaðinn frá Kröflu til Evrópu. Hvar er samkeppnisforskot Íslands í þessum ferli? Metan (jarðgas) er mest nýtti orkugjafinn í Evrópu og í öðru sæti í Norður-Ameríku á eftir olíu. Verð á metani, einkum í Norður-Ameríku, er aðeins brot af verði olíu. Metan er þess vegna mikilvægasta eldsneytið við raforkuframleiðslu í mörgum löndum. Metan er jafnframt í flestum tilvikum hráefnið sem notað er til framleiðslu á metanóli. Orkunýtingin við að breyta metani í metanól er mun betri en við framleiðslu á rafmagni úr metani. Af þessu sökum er það sóun á orku og verðmætum að keppa við metan með rafmagni við framleiðslu á metanóli. Hugmyndin um framleiðslu á metanóli með rafgreiningu á vetni og koltvísýringi er ekki ný. Orkustofnun gaf út skýrslu árið 1980 sem bar heitið Framleiðsla eldsneytis á Íslandi. Þar var m.a. skoðuð sú hugmynd að framleiða metanól úr rafgreindu vetni og kolefni. Niðurstaðan þá eins og hún hlýtur að vera nú er að ekki sé hagkvæmt að framleiða metanól á Íslandi. Í skammdeginu sækja menn í ljósið en það er villuljós að hugsa sér að breyta raforku í efnaorku á sama tíma og meirihluti rafmagns í heiminum er framleiddur með brennslu jarðefna. Bíðum róleg með frekari ákvarðanir um metanólframleiðslu þar til tilraunaverksmiðja Carbon Recycling International í Svartsengi hefur sannað sig fjárhagslega og tæknilega. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun