Lagerbäck er með hærri laun en formaðurinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. október 2011 10:00 Mynd/Vilhelm
Mikil umræða hefur átt sér stað um laun landsliðsþjálfara Íslands. Eftir að umræðan um erlendan þjálfara fór í gang hefur heyrst að það kosti 60-70 milljónir króna á ári að vera með erlendan þjálfara. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að sú umræða eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. „Stjórn KSÍ setti okkur ákveðinn fjárhagslegan ramma fyrir þessa ráðningu. Við erum innan þess ramma. Ég vil ekki segja hvað Lars er nákvæmlega með í laun en það er talsvert minna en þessar 65 milljónir sem talað var um í sænskum fjölmiðlum,“ sagði Geir ákveðinn og bætti við að þó svo að Lagerbäck væri með hærri laun en fyrirrennarar hans væru launin ekki það há að þau trufluðu starfsemi KSÍ á nokkurn hátt. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem KSÍ neitar að gefa upp laun en launaleynd hefur fylgt sambandinu lengi. Af hverju er það? „Við höfum ekki viljað gera það áður og það hefur einfaldlega ekki breyst. Lars er samt klárlega með hærri laun en þjálfararnir á undan honum,“ sagði Geir en er Lagerbäck með hærri laun en hann? „Já, Lars er með hærri laun en formaðurinn.“ Svíinn segist vera sáttur við sinn samning og tekur fram að hann sé ekki að koma til Íslands peninganna vegna. „Ef ég hefði ekki verið sáttur við samninginn þá hefði ég aldrei skrifað undir hann. Ef ég væri á höttunum eftir peningum hefði ég farið eitthvert annað en til Íslands. Ég er að koma hingað á fótboltalegum forsendum því hér er spennandi tækifæri fyrir mig,“ sagði Lagerbäck og glotti við tönn.
Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira