Þetta lofar góðu fyrir framhaldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2011 07:00 Daníel Laxdal. Mynd/Stefán
Daníel Laxdal og félagar í Stjörnunni slógu enn á ný í gegn í Pepsi-deildinni í sumar og náðu besta árangri félagsins í efstu deild. Stjörnumenn skemmtu áhorfendum með fögnunum í fyrra en í ár voru þeir með skemmtilegasta og markahæsta liðið og fögnin voru nú orðin frétt gærdagsins í Garðabænum. Fyrirliðinn Daníel Laxdal fór fyrir sínum mönnum og átti frábært tímabil, en góð spilamennska þessa fjölhæfa 25 ára leikmanns skilaði honum efsta sætinu í einkunnagjöf Fréttablaðsins. „Ég er sáttur við mína spilamennsku. Ég var ekki alveg nógu ánægður með mig á síðasta ári en mér fannst ég stíga upp núna eins og flestir gerðu í Stjörnuliðinu,“ segir Daníel, en liðið setti nýtt félagsmet með því að ná fjórða sætinu og var aðeins hársbreidd frá því að komast í Evrópukeppni. „Ég held að allir Stjörnumenn geti verið sáttir við að enda í fjórða sæti þótt það hafi verið svolítið svekkjandi að hafa ekki náð þessu Evrópusæti þarna í lokin,“ segir Daníel. Hann er ánægður með markakónginn Garðar Jóhannsson, sem lýsti því yfir eftir lokaleikinn að nú ætlaði Stjarnan að verða Íslandsmeistari á næsta ári. „Þetta lofar góðu fyrir framhaldið. Ég hefði ekkert á móti því að vinna dolluna næsta sumar en það er fínt að hafa ákveðin markmið. Við verðum að halda þessu áfram á næsta ári,“ segir Daníel. Stjörnumenn voru sterkir á lokasprettinum og náðu í þrettán stig út úr síðustu sex leikjum sínum, en undanfarin tvö tímabil hafði liðið aðeins náð í samtals fimm stig (í tólf leikjum) út úr síðustu sex umferðunum. Sýndu þroskamerki í sumar„Við höfðum alltaf fengið nóg og hætt í seinni umferðinni. Við sýndum núna að við erum orðnir miklu stöðugri sem lið og við vildum allir meira en að vera við miðju eða fyrir neðan miðju. Liðið sýndi klárlega þroskamerki í sumar,“ segir Daníel, en slæmur lokasprettur í fyrra átti örugglega mikinn þátt í því að spekingar töldu að blaðran væri sprungin og spáðu Stjörnunni aðeins 10. sæti. „Við hlógum bara að þessu. Það er betra að vera spáð svona neðarlega og koma á óvart en öfugt. Við vildum bara sýna að við erum hörku fótboltalið og mér fannst við gera það í sumar,“ segir Daníel. Stjarnan varð aðeins áttunda félagið í efstu deild til að brjóta fimmtíu marka múrinn á einu tímabili, en Stjörnumenn skoruðu 51 mark í leikjum 22. „Allur þessi sóknarleikur bitnar stundum á vörninni því við fáum allt of mörg mörk á okkur. Ef við náum að laga það mega hin liðin fara að passa sig,“ segir Daníel. Líður best í vörninniBjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, var óhræddur við að færa Daníel til á vellinum í sumar. „Ég var á miðjunni, bæði djúpur og framarlega, og svo var ég farinn á kantinn. Það var orðið svolítið mikið flakk. Mér líður langbest í miðri vörninni,“ segir Daníel og viðurkennir að leikmenn Stjörnuliðsins þurfi ákveðið frjálsræði til að njóta sín. „Bjarni þekkir vel inn á okkur og við inn á hann. Það er mikil orka sem býr í okkur og það kemur best í ljós inni á vellinum. Við erum villtir og úti um allt á vellinum,“ segir Daníel. Hann segir langflesta leikmenn liðsins vera góða vini og það skili sér í liðsstemningunni. „Við erum mjög flottur hópur og ég held að það sé mjög auðvelt að koma inn í Stjörnuliðið. Ég held líka að besta klefastemningin á landinu sé hérna í Stjörnuklefanum,“ segir Daníel. Mikilvægt sé að Stjörnuliðið bæti við sig til þess að geta stigið næsta skref. „Við þyrftum að fá allavega tvo mjög sterka leikmenn til að styrkja liðið og þá verðum við til alls líklegir á næsta ári,“ sagði Daníel að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Sjá meira