Börn með byssur Stefán Ingi Stefánsson skrifar 7. apríl 2011 07:00 Allt það skelfilega sem hendir fullorðna á átakasvæðum kemur einnig fyrir börn. Börn særast, látast, flýja, leita skjóls í flóttamannabúðum, verða fyrir hroðalegum ofbeldisverkum, missa heimili sín – berjast jafnvel sjálf. Fregnir hafa borist af því að börn séu á meðal þeirra sem eru undir vopnum í Líbíu, á meðal uppreisnarhópa og mögulega í stjórnarher landsins. Þetta eru alvarlegar fréttir. Annað er enn sorglegra: Vopnuð börn í Líbíu eru síður en svo einsdæmi. Börn eru flækt inn í stríðsátök í á þriðja tug átakasvæða. Börn eru börn og einmitt þess vegna eiga þau samkvæmt alþjóðalögum að njóta sérstakrar verndar. Þrátt fyrir það enda þau alltof oft hjá vopnuðum hópum – stúlkur sem drengir. Auk þess að taka þátt í átökum eru börn í herjum meðal annars notuð sem burðarmenn og innan herflokkanna eru þau oft beitt kynferðislegu ofbeldi. Hver sá sem ekki er orðinn 18 ára telst samkvæmt alþjóðlegum skilgreiningum vera barn. Í bókun við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir að aðildarríki skuli tryggja að börn séu ekki skylduð til herþjónustu. Aðrir vopnaðir hópar en ríkisherir mega ekki undir nokkrum kringumstæðum skrá þá sem ekki eru orðnir 18 ára í sinn flokk – hvað þá að beita þeim í hernaðarátökum. Árið 2002, í tengslum við Alþjóðlega sakamáladómstólinn, varð að stríðsglæp að nota börn undir 15 ára aldri í herþjónustu. Það er með öðrum orðum glæpur sem alltaf er refsiverður í stríði. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur þungar áhyggjur af lífi og velferð barna í Líbíu. Eftir því sem átökin dragast á langinn fá fréttir þaðan hins vegar smám saman minna vægi. Nú þegar hafa fréttir frá Líbíu færst aftar í íslensku fréttatímunum. Hvernig verður það eftir tvær vikur, mánuð, tvo mánuði? Eitt er víst: Börn í Líbíu munu þurfa aðstoð löngu eftir að þau eru horfin úr íslenskum fréttatímum. UNICEF á Íslandi stendur fyrir neyðarsöfnun til styrktar þessum börnum. Markmiðið er að styrkja hjálparstarf UNICEF á svæðinu en fræðast má um söfnunina á www.unicef.is. Nýjustu fregnir herma að börnum hafi enn fjölgað í hópi þess flóttafólks sem flúið hefur yfir landamærin. Stöndum þétt að baki börnum í Líbíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Allt það skelfilega sem hendir fullorðna á átakasvæðum kemur einnig fyrir börn. Börn særast, látast, flýja, leita skjóls í flóttamannabúðum, verða fyrir hroðalegum ofbeldisverkum, missa heimili sín – berjast jafnvel sjálf. Fregnir hafa borist af því að börn séu á meðal þeirra sem eru undir vopnum í Líbíu, á meðal uppreisnarhópa og mögulega í stjórnarher landsins. Þetta eru alvarlegar fréttir. Annað er enn sorglegra: Vopnuð börn í Líbíu eru síður en svo einsdæmi. Börn eru flækt inn í stríðsátök í á þriðja tug átakasvæða. Börn eru börn og einmitt þess vegna eiga þau samkvæmt alþjóðalögum að njóta sérstakrar verndar. Þrátt fyrir það enda þau alltof oft hjá vopnuðum hópum – stúlkur sem drengir. Auk þess að taka þátt í átökum eru börn í herjum meðal annars notuð sem burðarmenn og innan herflokkanna eru þau oft beitt kynferðislegu ofbeldi. Hver sá sem ekki er orðinn 18 ára telst samkvæmt alþjóðlegum skilgreiningum vera barn. Í bókun við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir að aðildarríki skuli tryggja að börn séu ekki skylduð til herþjónustu. Aðrir vopnaðir hópar en ríkisherir mega ekki undir nokkrum kringumstæðum skrá þá sem ekki eru orðnir 18 ára í sinn flokk – hvað þá að beita þeim í hernaðarátökum. Árið 2002, í tengslum við Alþjóðlega sakamáladómstólinn, varð að stríðsglæp að nota börn undir 15 ára aldri í herþjónustu. Það er með öðrum orðum glæpur sem alltaf er refsiverður í stríði. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur þungar áhyggjur af lífi og velferð barna í Líbíu. Eftir því sem átökin dragast á langinn fá fréttir þaðan hins vegar smám saman minna vægi. Nú þegar hafa fréttir frá Líbíu færst aftar í íslensku fréttatímunum. Hvernig verður það eftir tvær vikur, mánuð, tvo mánuði? Eitt er víst: Börn í Líbíu munu þurfa aðstoð löngu eftir að þau eru horfin úr íslenskum fréttatímum. UNICEF á Íslandi stendur fyrir neyðarsöfnun til styrktar þessum börnum. Markmiðið er að styrkja hjálparstarf UNICEF á svæðinu en fræðast má um söfnunina á www.unicef.is. Nýjustu fregnir herma að börnum hafi enn fjölgað í hópi þess flóttafólks sem flúið hefur yfir landamærin. Stöndum þétt að baki börnum í Líbíu.
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun