Er þjóðsöngurinn líka óæskilegur? Árni Gunnarsson skrifar 3. febrúar 2011 06:00 Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar vill koma í veg fyrir, að prestar þjóðkirkjunnar heimsæki grunnskóla borgarinnar, og ræði þar kristin gildi við nemendur. Ástæðan: Mismunun í kynningu á trúarbrögðum. Á Íslandi eru nú skráð 33 trúfélög. Kynningin gæti orðið flókin. Ekki veit ég hvort hugmyndin er sótt til Siðmenntar, sem er félag siðrænna húmanista, eða til félagsins Vantrúar, sem í eru 80-90 yfirlýstir trúleysingjar. Hvergi get ég fundið fjölda félaga í Siðmennt, sem vissulega er marktækt félag og málsvari manngildisstefnu. Fyrir nokkru sá ég svo frétt í blaði, þar sem andstæðingur þjóðkirkjunnar krafðist þess, að sunnudagsmessur í RÚV yrðu felldar niður. Til að fullnægja kröfunni um að prestar þjóðkirkjunnar hafi ekki óæskileg áhrif á ungt fólk, væri rökrétt framhald að fella niður barnamessur, jólamessur, áramótamessur, páskamessur, sjómannamessur et cetera. Og svo er Guðs að nokkru getið í þjóðsögnum. Kann það ekki að valda einhverri mismunun? Í stjórnarskrá Íslands VI. Kafla, 62. grein segir: „Hin evangelíska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi." Í þeim söfnuði eru nú 251 þúsund einstaklingar. Í Fríkirkjusöfnuðunum í Reykjavík og Hafnarfirði eru 13.573 og í Kaþólska söfnuðinum eru 9.625. Í Siðmennt og Vantrú eru nokkur hundruð félagar. Ég er sammála því, að í grunnskólum og öðrum skólum landsins, fari fram kynning og fræðsla um helstu trúarbrögð heims. En mér er ómögulegt, að koma auga á hættuna, sem fylgir því, að prestar eða aðrir starfsmenn hinnar íslensku þjóðkirkju, fræði skólabörn um kristna trú. Ekki minnist ég slæmra áhrifa af heimsóknum presta, hafi þær verið tíðkaðar í mínum skólum fyrir rúmum 60 árum. Ég fór jafnvel sjálfviljugur í KFUM og Vatnaskóg og tel mig jafnvel hafa orðið eitthvað skárri manneskja af þeirri „innrætingu", sem þar fór fram. En kannski er ég að misskilja þetta allt. Í barnaskap mínum hef ég alltaf talið, að Jesús Kristur hafi verið humanisti. Vegna þess arna vil ég láta það koma fram, að það er annarskonar innræting, sem vert væri fyrir humanista að hafa áhyggjur af. Það er innræting ofbeldis í kvikmyndum, sjónvarpi og tölvuleikjum, þar sem blóð flæðir, hausar velta og sigurvegarinn er sá, er flesta drepur. Ofbeldi, sem vex hröðum skrefum í okkar góða landi, á ekkert skylt við siðrænan humanisma. Ofbeldið ógnar manngildinu og ég legg eindregið til, að Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar beini baráttu sinni að þeim ófögnuði. Það eru mannréttindi að geta gengið öruggur um borgina sína. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 20.06.2026 Halldór „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar vill koma í veg fyrir, að prestar þjóðkirkjunnar heimsæki grunnskóla borgarinnar, og ræði þar kristin gildi við nemendur. Ástæðan: Mismunun í kynningu á trúarbrögðum. Á Íslandi eru nú skráð 33 trúfélög. Kynningin gæti orðið flókin. Ekki veit ég hvort hugmyndin er sótt til Siðmenntar, sem er félag siðrænna húmanista, eða til félagsins Vantrúar, sem í eru 80-90 yfirlýstir trúleysingjar. Hvergi get ég fundið fjölda félaga í Siðmennt, sem vissulega er marktækt félag og málsvari manngildisstefnu. Fyrir nokkru sá ég svo frétt í blaði, þar sem andstæðingur þjóðkirkjunnar krafðist þess, að sunnudagsmessur í RÚV yrðu felldar niður. Til að fullnægja kröfunni um að prestar þjóðkirkjunnar hafi ekki óæskileg áhrif á ungt fólk, væri rökrétt framhald að fella niður barnamessur, jólamessur, áramótamessur, páskamessur, sjómannamessur et cetera. Og svo er Guðs að nokkru getið í þjóðsögnum. Kann það ekki að valda einhverri mismunun? Í stjórnarskrá Íslands VI. Kafla, 62. grein segir: „Hin evangelíska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi." Í þeim söfnuði eru nú 251 þúsund einstaklingar. Í Fríkirkjusöfnuðunum í Reykjavík og Hafnarfirði eru 13.573 og í Kaþólska söfnuðinum eru 9.625. Í Siðmennt og Vantrú eru nokkur hundruð félagar. Ég er sammála því, að í grunnskólum og öðrum skólum landsins, fari fram kynning og fræðsla um helstu trúarbrögð heims. En mér er ómögulegt, að koma auga á hættuna, sem fylgir því, að prestar eða aðrir starfsmenn hinnar íslensku þjóðkirkju, fræði skólabörn um kristna trú. Ekki minnist ég slæmra áhrifa af heimsóknum presta, hafi þær verið tíðkaðar í mínum skólum fyrir rúmum 60 árum. Ég fór jafnvel sjálfviljugur í KFUM og Vatnaskóg og tel mig jafnvel hafa orðið eitthvað skárri manneskja af þeirri „innrætingu", sem þar fór fram. En kannski er ég að misskilja þetta allt. Í barnaskap mínum hef ég alltaf talið, að Jesús Kristur hafi verið humanisti. Vegna þess arna vil ég láta það koma fram, að það er annarskonar innræting, sem vert væri fyrir humanista að hafa áhyggjur af. Það er innræting ofbeldis í kvikmyndum, sjónvarpi og tölvuleikjum, þar sem blóð flæðir, hausar velta og sigurvegarinn er sá, er flesta drepur. Ofbeldi, sem vex hröðum skrefum í okkar góða landi, á ekkert skylt við siðrænan humanisma. Ofbeldið ógnar manngildinu og ég legg eindregið til, að Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar beini baráttu sinni að þeim ófögnuði. Það eru mannréttindi að geta gengið öruggur um borgina sína.
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar