Misskilningur um gjaldskrá Þórður Guðmundsson skrifar 13. janúar 2011 06:00 Vegna nýlegrar Kastljóssumræðu um að Landsnet hafi oftekið 6-7 milljarða króna í flutningskostnað af orkusölufyrirtækjunum á síðustu árum er nauðsynlegt að koma á framfæri staðreynum málsins en með þær hefur verið farið heldur frjálslega að mati okkar sem störfum hjá Landsneti. Árið 2007 varð það samdóma niðurstaða orkusölufyrirtækjanna, Orkustofnunar og Landsnets að æskilegt væri að færa gjaldskrá Landsnets fyrir flutningskostnað stórnotenda á raforku úr krónum yfir í dollara. Þetta var talið eðlilegt þar sem langstærsti hluti allra sölusamninga raforku er í dollurum og sama gegnir um fjárfestingaskuldbindingar fyrirtækjanna. Lögum samkvæmt ber að hafa gjaldskrá Landsnets hóflega þannig að tekjur dugi fyrir kostnaði við flutning orkunnar, afskriftum og arðsemi. Orkustofnun er falið að ákveða fyrirtækinu þau tekjumörk sem gjaldskráin miðast við og að hafa eftirlit með breytingum á gjaldskránni. Gjaldskrá Landsnets gildir annars vegar fyrir almenna notendur og hins vegar fyrir stórnotendur og verður ekki annað sagt en að henni hafi verið stillt í hóf því frá stofnun fyrirtækisins árið 2005 hefur gjaldskráin fyrir almenna notendur hækkað um 20% á sama tíma og aðrar dreifiveitur í landinu hafa hækkað sínar gjaldskrár um 40-80%.Gjaldskrá var lækkuð Reynt er að haga gjaldskrá Landsnets þannig að hún sé sem stöðugust þannig að til lengri tíma litið sé jöfnuður í viðskiptum við orkusölufyrirtækin, þótt komið geti tímabil þar sem hallar á annan hvorn aðilann. Stundum er misræmið orkusölufyrirtækjunum í hag og í öðrum tilfellum Landsneti. Haustið 2008 var þessi staða orkusölufyrirtækjunum í hag en það breyttist snögglega við gengisfall krónunnar í kjölfar bankahrunsins í lok október. Á vormánuðum 2009 þegar ljóst var að misvægi orkusölufyrirtækjanna gagnvart Landsneti vegna stórnotenda fór vaxandi var ráðuneyti og Orkustofnun gerð grein fyrir stöðunni og byrjað að huga að leiðum til að leiðrétta það. Við næstu gjaldskrárbreytingu í janúar 2010 var gjaldskráin síðan lækkuð um 7%. Áfram er misræmi vegna orkuflutnings fyrir stórnotendur sem væntanlega mun ganga tilbaka til orkusölufyrirtækjanna á næstu misserum og árum í formi lægri gjaldskrár. Hver þessi leiðrétting verður nákvæmlega liggur ekki fyrir þar sem enn hefur ekki verið lokið endurskoðun á eignagrunni Landsnets en breytingar á honum munu hafa áhrif á gjaldskrána.Ráðherra kveður upp úr Í þeirri umræðu sem hófst nú í byrjun janúar réttu ári eftir að leiðrétting var gerð á gjaldskrá Landsnets hafa því miður verið settar fram fullyrðingar sem byggja á misskilningi sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Þannig hefur því verið haldið fram að eitt þúsund milljónir króna hafi verið ofteknar við flutning á rafmagni til almenningsveitna. Þetta er af og frá. Sú innistæða sem orkusölufyrirtækin mynduðu hjá Landsneti á árinu 2009 er eingöngu til komin vegna orkuflutnings til stóriðju. Undir þetta er tekið í yfirlýsingu sem Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sendi frá sér eftir fund með stjórnendum Orkustofnunar og Landsnets síðast liðinn fimmtudag 6. janúar. Þar kemur fram að aðilar séu sammála um að gjaldskrá Landsnets fyrir flutning raforku til almenningsveitna hafi að öllu leyti verið innan þeirra tekjumarka sem Orkustofnun setti fyrirtækinu og í samræmi við gildandi eignagrunn. Umræða um að Landsnet hafi innheimt um einum milljarði króna of mikið af almannahlutanum miðað við sett tekjumörk sé því byggð á misskilningi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir skrifar Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson skrifar Skoðun Schengen - hvað færir það okkur? Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Af hverju treystir Reykjavík ekki atvinnulífinu? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin skrifar Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar