Íslenski boltinn

Kristján: Spiluðum skynsamlega

Ari Erlingsson skrifar
Kristján Guðmundsson þjálfari Valsmanna.
Kristján Guðmundsson þjálfari Valsmanna.
Kristján Guðmundsson þjálfari Valsmanna var að vonum sáttur með 2-0 sigur sinna manna í rokinu í Grindavík í kvöld en Valsmenn eru eina liðið með fullt hús eftir tvær umferðir í Pepsi-deild karla.

„Við nálguðust leikinn mjög vel. Spiluðum skynsamlega, bæði í fyrri hálfleik með vindinum og svo í þeim seinni þegar það blés á móti okkur," sagði Kristján.

„Það var í raun ekkert sem kom okkur á óvart í leik Grindavíkur. Það gerði okkur auðvelt fyrir að skora frekar snemma og við unnum vel út frá því. Ég er auðvitað sáttur með frammstöðuna og það er mikilvægt að taka 3 stig hérna í Grindavík," sagði Kristján.

Aðspurður um umbreytinguna á Valsliðinu frá því í fyrra hafði Kristján þetta að segja.

„Það er komið nýtt ár og því hafa fylgt nokkrir nýjir leikmenn. Nú er 2011 og við einblínum bara á það. Við fylgjum bara þeirri línu að við séum samstillir og séum að vinna sem eitt lið. Næsti leikur er svo heima gegn ÍBV og þá fáum við að sjá alveg dýrvitlausa Eyjamenn og við verðum bara að mæta jafn vel tilbúnir og í kvöld.“  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×