Stjórn fiskveiða Björn Valur Gíslason skrifar 11. janúar 2011 03:00 Stéttarfélög sjómanna hafa að venju nýtt tímann á milli jóla og nýárs til fundahalda enda er þetta eini tími ársins sem sjómenn eru flestir í landi á sama tíma. Mörg þeirra hafa ályktað um framtíðarskipan stjórnunar fiskveiða hér við land ásamt öðru sem að hagsmunum sjómanna snýr. Öll heildarsamtök sjómanna hafa sömuleiðis lýst áliti sínu á því hvernig stjórna beri fiskveiðum og sama má reyndar segja um samtök smárra sem stórra útgerða. Línurnar eru nokkuð skýrar hvað þetta varðar hjá öllum þessum aðilum: Farið skal að tillögu sáttanefndar um stjórn fiskveiða um svokallaða samningaleið. Öðrum leiðum er hafnað.Tillögur sáttanefndar Starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða skilaði í haustbyrjun niðurstöðum sínum og tillögum til úrbóta á þeim vettvangi eins og hópnum var falið að gera. Þar segir m.a. um meginniðurstöðu hópsins: „Meirihluti starfshópsins telur rétt að gerðir verði samningar um nýtingu aflaheimilda og þannig gengið formlega frá því að auðlindinni sé ráðstafað af ríkinu gegn gjaldi og að eignarréttur ríkisins sé skýr. Samningarnir skulu m.a. fela í sér ákvæði um réttindi og skyldur samningsaðila, kröfur til þeirra sem fá slíka samninga, tímalengd og framlengingu samninga, gjaldtöku, aðilaskipti, ráðstöfun aflahlutdeilda sem ekki eru nýttar, meðferð sjávarafla o.fl." Hér er skýrt talað og skilaboðin til ráðherra fara ekki á milli mála. Það er rétt að minna á að með meirihluta starfshópsins er átt við alla aðila hópsins, utan fulltrúa hreyfingarinnar og Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda. Að öðru leyti var algjör samhljómur hjá þessum fjölmenna hópi sem vann að gerð tillagna til úrbóta á lögum um stjórn fiskveiða. Í þeim hópi voru fulltrúar beggja stjórnarflokka auk annarra stjórnmálaflokka á Alþingi, fulltrúar allra stéttarfélaga sjómanna, útgerða, fiskverkenda og annarra sem málið varðar með beinum hætti. Það væri því í jafn hrópandi andstöðu við þá breiðu samstöðu sem náðist í starfshópnum og þau markmið sem hópnum var sett að ná, ef stjórnvöld kjósa að fara aðrar leiðir.Sérálit stjórnarmeirihlutans Í lokaskýrslu starfshópsins eru allmörg sérálit einstakra aðila hópsins þar sem áréttuð eru einstök atriði varðandi þær tillögur sem lagðar eru fram. Fulltrúar stjórnarflokkanna fjölluðu í sínu áliti um þær tvær leiðir sem helstar hafa verið í umræðunni, þ.e. svokölluð tilboðsleið (fyrningarleið) og hins vegar samningaleiðin sem meirihluti starfshópsins leggur til að verði farin. Í bókun fulltrúa stjórnarmeirihlutans segir m.a. um samningaleiðina: „Önnur leið að sama marki, sk. samningaleið, var einnig mikið rædd og felst í að innkalla aflaheimildir og úthluta þeim aftur með leigu- eða afnotasamningum. Ákveðnum hluta aflaheimilda yrði ráðstafað með slíkum samningum til núverandi handhafa aflamarks til ákveðins tíma. Jafnframt verði sérstakur „pottur" fyrir ýmsar ívilnanir og bætur, sem og tengingu aflaheimilda við ákveðnar byggðir eða svæði, strandveiðar og fleira þess háttar. Við teljum þess virði að fara þessa leið ef hún má verða til frekari sáttar meðal þjóðarinnar og hagsmunaaðila um fiskveiðistjórnunarkerfið."Álit annarra Aðrir aðilar starfshópsins voru sömu skoðunar eins og lesa má úr eftirfarandi bókunum þeirra: Samtök fiskvinnslustöðva: „Samtök fiskvinnslustöðva leggja til í framhaldi af þessari skýrslu að farið verði í þá vinnu að útfæra nánar Samningaleiðina og að verkið verði unnið í sátt við hagsmunaaðila í sjávarútvegi." Stéttarfélög sjómanna: „Undirritaðir að undanskildum fulltrúa Samtaka fiskframleiðanda og útflytjenda (SFÚ), fallast á að í grunninn verði svokölluð samningaleið farin, þar sem samið verði við útgerðir til um það bil 15 ára um nýtingarrétt á auðlindinni." Fulltrúi starfsgreinasambands Íslands: „Undirritaður er jafnframt þeirrar skoðunar að farsælast sé fyrir íslenskan sjávarútveg að fara svokallaða samningaleið þar sem aflaheimildum verði skipt upp í potta með ákveðnum hætti sem föstu hlutfalli af útgefnum veiðiheimildum." Fulltrúi LS: „Í skýrslu sáttanefndar er gert ráð fyrir að gerður verði samningur við handhafa veiðiréttar til langs tíma um nýtingu/afnotarétt sjávarauðlindarinnar sem byggður verði á veiðirétti hvers og eins. Landssamband smábátaeigenda getur fyrir sitt leyti samþykkt að mæla með því við félagsmenn sína að undirrita slíka samninga …" Fyrir utan áður nefndar undantekningar, voru allir aðrir aðilar starfshópsins á einum máli um að samningaleiðin væri sú leið sem réttast væri að fara.Markmið og tilgangur Starfshópnum var ætlað að greina álitaefni á lögum um stjórn fiskveiða og gera tillögur til úrbóta. Starfshópnum var sömuleiðis ætlað að leggja fram tillögur að framtíðarskipan laga um stjórn fiskveiða sem byggðu á sem víðtækastri sátt um stjórn þessarar einna mikilvægustu atvinnugreinar landsmanna. Tilgangurinn með því að leiða saman svo stóran hóp til að vinna slíkt verk var sá að kalla fram ólík sjónarmið og skoða málið frá sem flestum sjónarhornum með það að markmiði að ná niðurstöðu sem góð sátt væri um. Það tókst betur en flestir ætluðu í upphafi og hópurinn lagði til nánast einum rómi hugmynd að tiltekinni leið til að ná þeim markmiðum sem honum var ætlað að ná. Það eru því vandfundin þau rök sem hníga gegn því að fara þá leið til sátta sem opnað hefur verið á með tillögum starfshópsins. Til hvers var þá af stað farið í sáttarleit ef sáttinni sjálfri verður hafnað þegar henni hefur verið náð? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun