Innanríkisráðherra svarar biskupi 24. júní 2011 17:21 Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra. Mynd/Pjetur
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur svarað bréfi sem ritað var af lögmanni fyrir hönd biskups kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Ögmundur leiðréttir í bréfi sínu misskilning í bréfi kaþólsku kirkjunnar en þar sagði að dregist hefði að senda kirkjunni gögn frá ráðuneytinu sem vörðuðu meint gróf lögbrot af hálfu þjóna kirkjunnar og stofnana hennar á skjólstæðingum sínum. Frá þessu er greint á vef innanríkisráðuneytisins. Bréfaskiptin áttu sér stað í framhaldi af fundi sem biskupinn sat með Ögmundi og fleiri fulltrúum innanríkisráðuneytisins. Einstaklingar höfðu leitað til ráðherrans og greint frá eigin reynslu af stofnunum kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. ,,Framferði það sem þjónar kirkjunnar virðast hafa haft í frammi gagnvart skjólstæðingum sínum felur í sér gróf lögbrot og vísaði ég þessum einstaklingum því til lögreglu," segir í bréfi ráðherra. Á fundinum gerði ráðherra biskupnum grein fyrir þeim upplýsingum sem honum höfðu borist og vísaði til lögregluskýrslu þar sem rakin var reynsla fyrrnefndra brotaþola. Skýrsluna hafði ráðherra á fundinum með samþykki viðkomandi einstaklinga. Hvorki biskup né lögmaður hans óskuðu eftir því að fá lögregluskýrsluna í hendur. Í bréfi biskups til ráðherra segir: „Reyndar var um það rætt á fyrrnefndum fundi með ráðherra að lögmanni Kaþólsku kirkjunnar yrði sendar upplýsingar sem ekki hafa enn borist." Ráðherra segir í bréfi sínu að þessi útlegging sé ekki í samræmi við það sem fram hafi farið á fundinum. Þar hafi biskupi verið gert ljóst að kirkjan gæti óskað formlega eftir afritum af lögregluskýrslunum frá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Slík ósk hafi hins vegar aldrei verið sett fram. Þá segir ráðherra það sæta furðu, í ljósi þess hve alvarlega atburði sé um að ræða, að Kaþólska kirkjan skuli ekki hafa gengið fast eftir því að fá öll gögn í hendur til skoðunar þegar í stað og hefja sjálfstæða rannsókn á málinu, með það að leiðarljósi að upplýsa málið eftir fremsta megni og mæta þeim einstaklingum sem hafi verið beittir órétti af hálfu kirkjunnar þjóna.
Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira