Umfjöllun: Tilþrifalítið jafntefli í Laugardal Kolbeinn Tumi Daðason á Laugardalsvelli skrifar 11. júlí 2011 13:57 Mynd/HAG
Framarar og Grindvíkingar skildu jöfn í stressleik í Laugardalnum í kvöld. Lokatölur 1-1 í leik þar sem lítið var um góð tilþrif. Framarar voru betri aðilinn í Laugardalnum framan af. Kristinn Ingi Halldórsson var þeirra sprækastur og lagði upp eina mark hálfleiksins. Þá lék hann upp að endamörkum hægra megin og sendi fyrir á Tómas Leifsson sem skoraði af stuttu færi. Grindvíkingar virkuðu taugaveiklaðir og náðu upp litlu spili. Þeir kýldu boltann upp völlinn hvort sem þar var samherja að finna eða ekki. Marki undir í hálfleik gátu þeir farið sáttir inn í búningsklefa og ráðið ráðum sínum. Síðari hálfleikur var mun jafnari og allt í járnum. Orri Freyr Hjaltalín átti skot í slá úr fínu færi og fór að fara um Framara í stúkunni sem eiga enn eftir að sjá sitt lið vinna sigur í deildinni. Um miðjan hálfleikinn var varamaðurinn Paul McShane, fyrrum Framari, fljótur að hugsa. Meðan Framarar sváfu á verðinum sendi hann boltann á Robbie Winters úr aukaspyrnu. Winters sneri af sér varnarmann Framara og hamraði knöttinn í netið. Vel afgreitt. Það var fátt um fína drætti það sem eftir lifði hálfleiksins. Tómas Leifsson fékk besta færið til þess að tryggja þrjú stig en skot hans himinhátt yfir úr dauðafæri. Lokatölurnar 1-1. Úrslit sem Grindvíkingar eiga mun auðveldara með að sætta sig við en lánlausir Framarar. Ef það var einhvern tímann kalt á toppnum þá er skítkalt á botninum. TölfræðiSkot (á mark): 15-6 (7-3) Varin skot: Ögmundur 2 – Óskar 6 Horn: 11-2 Aukaspyrnur fengnar: 13-12 Rangstöður: 3-2 Dómari: Guðmundur Ársæll Sigurðsson 5
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira