Innlent

Tökum lokið á Svartur á leik

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Aðalleikarar úr Svartur á leik ásamt leikstjóra. Þetta eru þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson, Egill Einarsson, Óskar Þór Axelsson, Damon Younger, Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Aðalleikarar úr Svartur á leik ásamt leikstjóra. Þetta eru þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson, Egill Einarsson, Óskar Þór Axelsson, Damon Younger, Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Tökum á myndinni „Svartur á leik" lauk í dag eftir að hafa staðið yfir í fimm vikur. Óskar Þór Axelsson leikstjóri hefur undirbúið gerð myndarinnar í fimm ár og er farinn að hlakka til að geta sýnt fólki hana. „Ég byrjaði að vinna í því 2006. Svo er ég búinn að verra að vinna í þessu af og til síðan þá," segir Óskar.

Óskar segist vera ánægður með vinnuna eins og hún standi núna, en það geti alltaf komið eitthvað upp seinna. Hann er ekki viss hvenær myndin verði frumsýnd. „Bara þegar hún er tilbúin. Við höfum stundum verið að tala um næstu jól eða áramót. En það er ekkert niðurneglt í því," segir Óskar. Nú þegar tökurnar eru búnar tekur við klippivinna, að sögn Óskars. „Erfiðasta ferlið er tökurnar. Það er rosalega mikið búið þegar það er búið," segir hann.

Óskar segir að fjölmargt skemmtilegt hafi gerst á meðan tökur stóðu yfir. Það var svolítið skrýtið að við fórum í næturtökur í byrjun mánaðarins - aðfararnótt 1. maí. Þegar við erum að keyra upp í Hvalfjörð, þar sem við vorum að fara í næturtökur, þá kyngir niður snjó. Það var alveg svona rosalega jafn og fagur jólasnjór," segir Óskar. Hann segir að það hafi verið mikil heppni að fá þann snjó fyrir tökurnar.

Þá segir Óskar að þegar tökuliðið var að endurgera bankarán í Búnaðarbankanum við Vesturgötu og taka myndir af vitnum hafi þeir hitt mann sem varð vitni að málinu þegar ránið var framið í raun og veru fyrir mörgum árum. „Hann stoppaði hjá okkur og spjallaði við bankaræningjana," segir Óskar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×