Íslenski boltinn

Gunnar Þór á skýrslu í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR. Mynd/Vilhelm
Gunnar Þór Gunnarsson verður á skýrslu hjá KR þegar að liðið mætir FH í 16-liða úrslitum Valitors-bikarsins í kvöld. Hann hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu, rétt eins og Björn Jónsson og Egill Jónsson sem báðir eru á góðum batavegi.

Gunnar Þór kom til KR í vetur frá sænska félaginu Halmstad. Hann sleit hins vegar krossband í hné á síðasta ári og hefur síðan þá verið að koma sér aftur í stand.

„Ég reikna með að Gunnar verði á skýrslu í kvöld en að Björn og Egill verði fyrir utan hóps,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, í samtali við Vísi í dag. „Öllum gengur þó vel að koma sér aftur af stað eftir sín meiðsli.“

„Þetta tekur þó allt sín tíma og vil ég alls ekki að menn komi of fljótt til baka. Þeir þurfa að fá tíma til að koma sér aftur af stað.“

KR lék æfingaleik við Gróttu í síðustu viku og komu allir þrír við sögu í honum. Björn og Egill gengust báðir undir aðgerð vegna sinna meiðsla í vetur og gætu spilað með KR áður en langt um líður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×