Íslenski boltinn

Bjarnólfur: Leiðinlegur blettur á spilamennsku Tryggva

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bjarnólfur Lárusson, þjálfari Víkings, var afar ósáttur við Tryggva Guðmundsson, leikmann ÍBV, eftir leik liðanna í kvöld.

ÍBV vann 3-1 sigur og skoraði Tryggvi fyrstu tvö mörk leiksins. Það fyrra úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Bjarnólfur var ósáttur við þann dóm.

„Það var jafnræði með liðunum til að byrja með en þessi vítaspyrnudómur reyndist okkur nokkuð erfiður því þá þurftum við að sækja leikinn,“ sagði Bjarnólfur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

„Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn þó svo að tvö mörk hafi skilið á milli liðanna. Þannig er oft munurinn á milli liða í topp- og botnbaráttu. Þeir nýttu færin sín en við ekki.“

Tryggvi skoraði úr vítspyrnunni strax á sjöundu mínútu og Bjarnólfur var mjög ósáttur við ákvörðun Magnús Þórissonar dómara. Hann kenndi þó Tryggva um.

„Þessi dómur hallaði helvíti mikið á okkur. Ég er afar ósáttur við Tryggva og að hann skyldi hafa látið sig falla. Hann er að eiga frábært tímabil er jafnvel að fara að slá markamet. Mér finnst þetta afar leiðinlegur blettur á hans spilamennsku.“

Bjarnólfur þurfti að breyta liðinu sínu mikið, bæði fyrir leik og í hálfleik þegar tveir þurftu að fara af velli vegna meiðsla.

„Við þurftum að vinna þennan leik og í seinni hálfleik þurftum við að breyta um og stilla upp í þriggja manna varnarlínu til að sækja þessi þrjú mörk sem við þurftum. Það var ekki létt. Þetta hafði því gríðarleg áhrif á okkar lið.“

„Mér fannst við spila vel á köflum en það vantaði meiri grimmd og ákefð í leik liðsins.“

Hann segir von Víkinga um að bjarga sér á falli meðan tölfræðin segir svo. „En líkurnar minnka vissulega með hverjum leiknum sem við töpum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×