Hjörtur Júlíus Hjartarson: Þrisvar upp á fjórum árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2011 11:00 Hjörtur hjartarson fagnar hér tólfta marki sínu í sumar. Mynd/Valli
Skagamaðurinn Hjörtur Júlíus Hjartarson þekkir þá tilfinningu vel að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni. Hjörtur tryggði Skagaliðinu sæti í Pepsi-deildinni næsta sumar með því að skora jöfnunarmark liðsins á móti ÍR í fyrrakvöld. Þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem Hjörtur fer upp með sínu liði. Hann fór líka upp með Þrótturum sumarið 2007 og fór síðan upp með Selfyssingum fyrir tveimur árum. Hjörtur er markahæstur í 1. deildinni í ár með 12 mörk í 15 leikjum en hann varð markakóngur deildarinnar 2007 þegar hann skoraði 18 mörk í 21 leik með Þrótti. Hjörtur skoraði síðan 7 mörk í 10 leikjum með Selfyssingum sumarið 2009. Hjörtur hefur því alls skorað 44 mörk í 67 leikjum í 1. deildinni undanfarin fimm sumur en sumarið 2008 lék hann með Þrótturum í úrvalsdeildinni. „Ég hef ekkert gefið það út hvort ég leiki með Skaganum á næsta tímabili en líklega verða þeir án mín. Maður veit samt aldrei,“ sagði Hjörtur í viðtali á Vísi eftir ÍR-leikinn. Það væri kannski ekki vitlaust fyrir lið í 1. deildinni, sem ætlar sér að fara upp næsta sumar, að kanna stöðuna á kappanum eftir þetta tímabil.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira