Eini karl lýðveldisins sem lokið hefur náminu 20. nóvember 2011 08:00 Guðmundur Finnbogason heimilisfræðikennari með Eyju Sigrúnu Jónsdóttur og Rut Sumarrós Eyjólfsdóttur, nemendum í 5. bekk Laugarnesskóla. fréttablaðið/gva
Guðmundur Finnbogason er eini karl lýðveldisins sem lokið hefur kennaranámi í heimilisfræðum. Hann ákvað að sameina fjölskyldur landsins í eldhúsinu með því að skrifa matreiðslubók handa krökkum. „Það er talað um að tölvuleikir höfði til barna því þar verði svo skjót endurgjöf, en matreiðslan er eins með sín skýru verkefni, mælanlega árangur og endurgjöf strax," segir Guðmundur yfir áhugasömum matreiðslusnillingum í Laugarnesskóla. „Öll börn hafa yndi af eldamennsku. Þau verða kannski ekki öll Michelin-kokkar en hvert og eitt getur orðið fært um að búa til mat sem það nýtur að borða og hjálpar til við hreysti og heilbrigði. Þá hugsun þurfa foreldrar að innleiða hjá börnum sínum og kynna þeim verkefnið sem mikilvægt og nauðsynlegt, með þekkingu og færni sem auðvelt er að tileinka sér," segir Guðmundur og leggur áherslu á að eldhús megi aldrei verða börnum framandi heimur því þannig búi foreldrar til fólk sem lifi á skyndibita. Með matreiðslubókinni Eldum saman vildi Guðmundur skapa hjálpartæki fyrir fjölskyldur að gera eitthvað saman í eldhúsinu. „Matmálstímar sameina fólk og skapa dýrmætar minningar. Með því að virkja börn í eldamennskunni verður afraksturinn þeirra og meira gaman að borða." Guðmundur segir réttan tíma fyrir börn að hefja eldhússtörf þegar þau sýni þeim áhuga. „Það gerist oft um tveggja, þriggja ára aldur. Þá er verkefni foreldra að finna barninu hentug og raunveruleg viðfangsefni, en alls ekki of einföld aulaverkefni sem svo er ekki ætlað að borða." Guðmundur hefur komist að því hvað öllum krökkum þykir gott. „Allir krakkar eru hrifnir af pitsu, enda auðvelt að laga hana að smekk hvers og eins. Þá er grjónagrautur í uppáhaldi, sem og bakstur, sem þeim þykir skemmtilegur viðfangs og gaman að uppskera með góðri köku." Í Eldum saman fer Guðmundur yfir mannasiði við matarborðið, hreinlæti og annað til stuðnings uppeldi barna í eldhúsinu. thordis@frettabladid.is Kókoskökur Guðmundar heimilisfræðikennaraGirnilegar kókoskökur.Góð uppskrift að kókoskökum. Hún telur um 20 kökur sem er fljótlegt og gaman að baka. Áhöld: Skál, sleif, desilítramál, mæliskeiðar og bökunarplata með bökunarpappír3½ dl hveiti2 dl sykur3-4 dl kókosmjöl½ tsk. hjartarsalt150 g mjúkt smjör1 dl rúsínur1 egg Setjið allt í skál og hrærið vel saman. Ef deigið er mjög blautt má bæta í það smá hveiti en ef það er of þurrt þá örlitlu vatni. Mótið litlar kúlur í höndunum og setjið á plötuna. Reynið að hafa gott bil á milli þeirra. Bakið við 180 °C í 10–12 mínútur eða þar til kökurnar hafa stífnað aðeins og eru orðnar fallega gullinbrúnar.
Mest lesið Betra að vera blankur nemi í New York Lífið Gisti hálft ár á sófum hjá bekkjarfélögum Lífið Upplifði stöðugan ótta við helvíti í samfélagi múslima í Svíþjóð Lífið „Get ekki hætt að hugsa um bragðarefinn sem hann pantaði“ Lífið Kynlífið innantómt með öðrum en fyrrverandi Lífið Stjörnulífið: „Dagur sem mun aldrei gleymast“ Lífið „Segið að ég sé samkynhneigður en ekki ljúga með hitt“ Lífið Samsæriskenningar notaðar sem stjórntæki Lífið Fékk lífið til baka á korteri eftir tólf ár af sársauka Lífið Langþráður draumur verður að veruleika Lífið Fleiri fréttir Smjörsteikt bleikja, smjörkennt hvítvín og „alkahólíseraður Texasbúi“ „Táknmynd ítalskrar matargerðar“ Silkimjúk espresso-kaka fyrir helgina „Forréttur sem ég býð öllum upp á“ Próteinríkt avókadó-salat að hætti Önnu Eiríks Sjá meira