Ólafur Örn: Óskar er búinn að vera ótrúlega góður Valur Smári Heimisson skrifar 1. október 2011 17:28 Ólafur Örn Bjarnason í leiknum í dag. Mynd/ Óskar Pétur Friðriksson
Ólafur Örn Bjarnason, spilandi þjálfari Grindvíkinga, var að vonum ánægður með sína menn eftir að hafa komið sér úr fallsæti á síðustu stundu. Grindvíkingar unnu Eyjamenn 2-0 á Hásteinsvellinum og var það Ólafur sjálfur sem kom sínum mönnum á bragðið með því að skora fyrsta markið. „Það er enginn leikur auðveldur í þessari deild og allra síst á móti Eyjamönnum á þeirra heimavelli. En leikurinn sem slíkur var kannski ekkert sérstakur fótboltalega séð en við gerðum vel með að halda okkur inní leiknum í fyrri hálfleik og náðum svo að koma inn mörkum hjá þeim í seinni hálfleik. Þetta var góð barátta hjá okkur og ég er ánægður með strákana í dag," sagði Ólafur Örn. Grindvíkingar hafa átt afar erfitt tímabil í sumar og fyrir lokaumferðina voru þeir sennilega líklegastir til að falla niður með Víkingum. Þá voru erlendu leikmennirnir ekki að koma eins sterkir inn í liðið eins og Ólafur var að vonast til. „Það sem var að klikka á þessu tímabili er að erlendu leikmennirnir voru ekki að standa sig eins vel og við vorum að vonast til. Þess vegna fengu mikið af ungum leikmönnum og sumir varamenn meiri spiltíma en var lagt upp með í byrjun. Það þarf samt sem áður að verða einhver uppbygging fyrir næsta tímabil og ég held að það sé öllum ljóst," sagði Ólafur Örn. Markvörðurinn Óskar Pétursson var maður leiksins á Hásteinsvellinum en hann átti stórleik í markinu og varði meðal annars víti frá Tryggva Guðmundssyni. „Óskar átti flottan leik eins og í fyrri leikjum. Hann er búinn að vera ótrúlega góður en hann er bara einn hlekkurinn í þessu liði og ég vil meina að strákarnir allir hafi staðið sig vel hérna í dag," sagði Ólafur Örn þjálfari Grindvíkinga.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira