Að finna stéttarfélag Sveinn Ólafsson skrifar 11. apríl 2011 06:00 Margt hefur breyst á síðustu þremur árum og þar á meðal staða launþega. Allt er orðið harðdrægara og verður það næstu árin. Stéttarfélög semja um lágmarkskjör stétta á vinnumarkaði. Milli 1995 og 2008 voru þetta viðmiðunarkjör sem sífellt færri bjuggu við. Eftir það eru þetta raunveruleg kjör æ fleiri. Margt háskólamenntað fólk hefur verið skráð í almenn stéttarfélög, ýmist vegna þess að vinnuveitandi skráir flesta launþega sína í sama stéttarfélag eða vegna þess að fólk hefur valið sér félög vegna orlofskosta eða af öðrum ástæðum. Háskólamenntuðu fólki er frjálst að ganga í sitt stéttarfélag innan BHM án tillits til þess hvar það vinnur. Þótt það vinni við störf sem krefjast ekki háskólamenntunar nýtur það sama stuðnings og réttinda og aðrir félagsmenn. Margir halda að félög innan BHM séu bundin við opinbera starfsmenn en það er öðru nær, félagsmenn þeirra vinna bæði á almennum markaði og innan opinbera geirans. Eftir þær breytingar sem urðu 2008 er aukin áhersla á starfsmenntun, bæði af hendi vinnuveitenda og stéttarfélaga. Aðstæður hafa breyst mikið og það eru bæði hagsmunir launþega og vinnuveitanda að hafa vel menntað starfsfólk til þeirra starfa sem verða til á næstu árum, og vegna breytinga sem verða á núverandi störfum. Starfsmenntun háskólamenntaðra stéttarfélaga mun miðast við þarfir þeirra stétta og ekki annarra. Flestar fagstéttir háskólamenntaðra eiga sér sitt félag innan BHM en eitt félag, Fræðagarður, hefur verið opið öllum háskólamenntuðum sem ekki eiga sér stað í öðrum félögum. Fólki er frjálst að velja sitt stéttarfélag og miðast við reglur félaganna um inngönguskilyrði, sem að jafnaði eru háskólamenntun í viðkomandi fagi að aflokinni BA- eða BS-gráðu. Hægt er að skipta um stéttarfélag frá því þremur mánuðum áður en samningar losna og þar til samningar komast á að nýju. Samningar urðu almennt lausir 30. nóvember síðastliðinn og eru ekki komnir á að nýju. Allt háskólamenntað fólk ætti að skoða vandlega kosti þess að vera hluti af sínu stéttarfélagi. Allar nánari upplýsingar eru á vef BHM og vefjum viðkomandi stéttarfélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Margt hefur breyst á síðustu þremur árum og þar á meðal staða launþega. Allt er orðið harðdrægara og verður það næstu árin. Stéttarfélög semja um lágmarkskjör stétta á vinnumarkaði. Milli 1995 og 2008 voru þetta viðmiðunarkjör sem sífellt færri bjuggu við. Eftir það eru þetta raunveruleg kjör æ fleiri. Margt háskólamenntað fólk hefur verið skráð í almenn stéttarfélög, ýmist vegna þess að vinnuveitandi skráir flesta launþega sína í sama stéttarfélag eða vegna þess að fólk hefur valið sér félög vegna orlofskosta eða af öðrum ástæðum. Háskólamenntuðu fólki er frjálst að ganga í sitt stéttarfélag innan BHM án tillits til þess hvar það vinnur. Þótt það vinni við störf sem krefjast ekki háskólamenntunar nýtur það sama stuðnings og réttinda og aðrir félagsmenn. Margir halda að félög innan BHM séu bundin við opinbera starfsmenn en það er öðru nær, félagsmenn þeirra vinna bæði á almennum markaði og innan opinbera geirans. Eftir þær breytingar sem urðu 2008 er aukin áhersla á starfsmenntun, bæði af hendi vinnuveitenda og stéttarfélaga. Aðstæður hafa breyst mikið og það eru bæði hagsmunir launþega og vinnuveitanda að hafa vel menntað starfsfólk til þeirra starfa sem verða til á næstu árum, og vegna breytinga sem verða á núverandi störfum. Starfsmenntun háskólamenntaðra stéttarfélaga mun miðast við þarfir þeirra stétta og ekki annarra. Flestar fagstéttir háskólamenntaðra eiga sér sitt félag innan BHM en eitt félag, Fræðagarður, hefur verið opið öllum háskólamenntuðum sem ekki eiga sér stað í öðrum félögum. Fólki er frjálst að velja sitt stéttarfélag og miðast við reglur félaganna um inngönguskilyrði, sem að jafnaði eru háskólamenntun í viðkomandi fagi að aflokinni BA- eða BS-gráðu. Hægt er að skipta um stéttarfélag frá því þremur mánuðum áður en samningar losna og þar til samningar komast á að nýju. Samningar urðu almennt lausir 30. nóvember síðastliðinn og eru ekki komnir á að nýju. Allt háskólamenntað fólk ætti að skoða vandlega kosti þess að vera hluti af sínu stéttarfélagi. Allar nánari upplýsingar eru á vef BHM og vefjum viðkomandi stéttarfélaga.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun