Tryggvi: Fimm mörk - ekki fjögur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. ágúst 2011 22:16 Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV.
Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö mörk og lagði eitt upp í 3-1 sigri ÍBV á Fylki í Pepsi-deild karla í kvöld. „Það hefði verið gaman að setja þrennuna í lokin en við fórum illa með það færi,“ sagði hann í léttum dúr. „Við spiluðum vel, pressuðum hátt og létum boltann ganga vel okkar á milli.“ ÍBV tapaði fyrir Þór í bikarnum í síðustu viku og Tryggvi segir að að það hafi verið sárt að detta úr leik í bikarkeppninni. „Við vorum nálægt því að komast í úrslitaleikinn en við fengum verslunarmannahelgina til að fara yfir hlutina. Við vorum því ekkert rúllandi í brekkunni, heldur einbeittum okkur að verkefninu og vorum við staðráðnir í að ná góðum leik eftir Þjóðhátíð. Við vildum sýna fagmennsku í dag.“ Tryggvi segir að Eyjamenn megi ekkert gefa eftir á lokasprettinum í deildinni ætli liðið sér að ná toppliði KR að stigum. „Við verðum að halda áfram að sýna sömu baráttu og vilja eins og við gerðum í dag. Ég hef ekki mikla trú á því að KR muni misstíga sig mikið eins og þeir hafa verið að spila. Við verðum því að passa okkur á því að tapa ekki stigum að óþörfu því annars eru þeir stungnir af.“ Tryggvi á nú fjögur mörk í að jafna markamet Inga Björns Albertssonar sem skoraði 126 mörk í efstu deild á sínum tíma. „Það eru fjögur mörk til að jafna en við tölum ekkert um það. Það eru enn fimm mörk eftir,“ sagði hann í léttum dúr. „Mér er svo sem sama hvort ég bæti þetta met í sumar eða næsta sumar. Ég ætla ekki að hætta í haust enda hef ég enn mjög gaman af boltanum og tel mig enn ágætan í honum.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Fáránleg ákvörðun FIFA góð fyrir mótið Sport Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjá meira