Heimir: Feginn að hafa ekki spilað enn við KR Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. ágúst 2011 22:07 Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV.
Heimir Hallgrímsson, segist vera því feginn að hafa ekki enn spilað við KR í sumar en ÍBV komst upp í annað sæti Pepsi-deildar karla í kvöld með 3-1 sigri á Fylki í kvöld. „Þetta var mjög sannfærandi hjá okkur og fyrri hálfleikurinn var með því betra sem við höfum sýnt í sumar. Þeir fengu nánast ekki færi allan leikinn - kannski aðeins í lokin þegar þeir skoruðu markið en þá vorum við kærulausir.“ „Annars var þetta góður varnarleikur heilt yfir og sannfærandi sigur liðsheildarinnar.“ ÍBV hefur oftar en ekki átt erfitt uppdráttar í fyrsta leik eftir Þjóðhátíð í Eyjum en annað var upp á teningnum nú. Heimir gerði þar að auki fimm breytingar á sínu liði frá bikartapinu gegn Þór í síðustu viku og setti til að mynda fjóra erlenda leikmenn á bekkinn. „Það var ekki með ráðum gert. Við æfðum einfaldlega vel um helgina og ég reyndi að velja þá leikmenn í liðið sem ég taldi að væru tilbúnir í mikinn bardagaleik eins og þeir vilja oft verða í Árbænum.“ ÍBV er nú með 25 stig eftir tólf leiki en KR er á toppnum með 27 stig eftir ellefu leiki. Þessi lið eiga einmitt eftir að mætast í sumar og er Heimir feginn því að hafa sloppið við KR hingað til. „Afar feginn. Við höfum verið ansi sveiflukenndir í sumar og það megum við ekki ef við ætlum að halda í við KR. Þeir hafa verið stöðugir en vonandi kemur einhvern tíma niðursveifla hjá þeim og þá helst þegar þeir eiga að mæta okkur.“ „Eins og staðan er núna eru þeir með algert yfirburðalið. Þeir byrjuðu ekki vel en unnu sína leiki á meðan þeir voru slakir. Þegar þeir byrjuðu svo að spila vel átti ekkert lið séns í þá.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjá meira